Lífið

Töfrandi litir í Toronto

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Toronto í Kanada hófst þann 4. september og lýkur 14. september.

Áætlað er að um hálf milljón manna sæki hátíðina ár hvert en stærstu stjörnur kvikmyndabransans eru óhræddar við að leyfa litríkum fatnaði að njóta sín á rauða dreglinum í ár.

Leikkonan Naomi Watts klæðist hér kjól frá Antonio Berardi.
Leikkonan Noomi Rapace í dressi frá Vionnet.
Spéfuglinn Elizabeth Banks í dragt frá Chloe, toppi frá American Apparel og með tösku og í hælum frá Jimmy Choo.
Leikkonan Reese Witherspoon í kjól frá Saint Laurent.
Leikkonan Felicity Jones í kjól frá Balenciaga.
Leikkonan Julianne Moore í kjól frá Chanel Couture og í hælum frá Christian Louboutin. Kollegi hennar Kate Bosworth í kjól frá Hugo Boss og í hælum frá Kurt Geiger.
Fyrirsætan Cara Delevingne ásamt leikkonunni Kate Beckinsale, sem er í samfestingi frá Azzarro.
Leikkonan Amanda Seyfried í kjól frá Valentino og hælum frá Jimmy Choo.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.