Holl og næringarrík súpa sem kemur hita í kroppinn á köldum og blautum haustkvöldum.
Dásamlega bragðgóð og mjög einföld að búa til.
1 matskeið olía til steikingar
1 laukur
1 teskeið kóríanderkrydd
1 lítil lífræn sæt kartafla
450 g lífrænar gulrætur
1 lítri vatn
1 teningur grænmetiskraftur
handfylli af ferskum kóríander
1 tsk. sjávarsalt
1. Byrjið á því að þvo grænmetið og skræla gulræturnar og kartöfluna. Skerið allt grænmetið niður í litla bita.
2.Steikið laukinn og sætu kartöfluna með kóríanderkryddinu í olíunni í 5 mínútur eða þangað til að laukurinn er orðinn mjúkur.
3. Hellið steikta grænmetinu í pott ásamt gulrótunum, vatninu og grænmetiskraftinum. Lokið pottinum og látið sjóða í 25 mínútur.
4. Hellið úr pottinum í matvinnsluvél og bætið ferskum kóríander við. Blandið saman þangað til að áferðin er orðin mjúk.
5. Hitið aftur í pottinum, smakkið og bætið örlitlu sjávarsalti við ef þess þarf.
Borðið og njótið!
