Lífið

Í einangrun í fjórtán daga

Leikkonan ók undir áhrifum í Los Angeles og var sett beint í einangrun.
Leikkonan ók undir áhrifum í Los Angeles og var sett beint í einangrun.
Lindsay Lohan segist hafa verið í einangrun í fjórtán daga eftir að hún var eitt sinn handtekin fyrir að aka undir áhrifum áfengis í Los Angeles. Ummælin lét hún falla í sjónvarpsþætti Jonathans Ross í Bretlandi.

„Ég gerði mistök. Ég fór á klúbb og svo drakk ég og ók heim. Það á maður ekki að gera,“ sagði leikkonan. Í einangruninni var hún lokuð inni í 23 klukkustundir á dag innan um konur sem voru í fangelsi fyrir morð og fannst henni refsingin sem hún fékk fullhörð.

Aðrir gestir í þætti Ross voru Russell Brand og Daniel Radcliffe.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×