Lífið

Má segja að hann sé með typpi á heilanum

Adda Soffia Ingvarsdóttir skrifar
María Guðrún Rúnarsdóttir ljósmyndari
María Guðrún Rúnarsdóttir ljósmyndari Vísir
María Guðrún Rúnarsdóttir. ljósmyndari fékk einstakt tækifæri upp í hendurnar á dögunum, þar sem hún fekk tækifæri til að aðstoða við heimildarmynd um goðsögn í ljósmyndaheiminum, Will McBride. Hún hefur starfað sem ljósmyndari í sex ár, en býr nú í Berlín, þar sem hún stundar nám í ljósmyndun.

„Belgískur vinur minn, Jordan Todorov, sem ég kynntist hérna úti er leikstjóri. Hann er að gera mynd um hann og bauð mér að vera með,“ segir María. McBride sem í dag er 83 ára var á sínum tíma mjög umdeildur listamaður. „Hann tók frekar óvenjulegar myndir, en þær voru aðallega að unglingsstrákum og voru þeir oftast naktir. Myndirnar eru þó langt frá því að vera klámfengnar, þær eru mjög smekklegar. En á sínum tíma þá voru þær mjög umdeildar,“ segir hún.

McBride fluttist ungur frá Bandaríkjunum til Þýskalands. Hann giftist fyrrum eiginkonu sinni árið 1960, en kom út úr skápnum nokkrum árum síðar. Verk hans einkenndust af nekt, og árið 1975 kom út bókin Show me! sem hann gaf út í samstarfi við geðlækninn Helga Fleischhauer-Hardt. Fjallaði hún um börn sem kynverur og var hún bönnuð í Bandaríkjunum, þar sem hún var flokkuð sem barnaklám. McBride tók einnig myndir af fólki í fötum, þó nektin hafi vissulega átt hug hans allan. „Það má eiginlega segja að hann hafi verið með typpi á heilanum,“ segir hún.



Will McBrideVísir/María Guðrún Rúnarsdóttir
Á tímabili bjó McBride með söngkonunni Donnu Summer, en þau voru miklir vinir. „Hann myndaði hana mikið og líka Andy Warhol, en þeir voru góðir félagar líka.“ 

María segir það mikinn heiður fyrir sig sem ljósmyndanema að fá að taka þátt í svona verkefni. „Þegar ég sagði kennaranum mínum frá þessu þá tók hún kast, hún dauðöfundaði mig.“ Tökur á myndinni hófust á miðvikudag og eyddu María og leikstrjórinn heilum degi með McBride.

„Hann er orðinn voða gamall og er alveg hættur að taka myndir. Núna málar hann málverk í staðinn. Það kannski lýsir honum vel, en þó hann sé orðinn svona gamall og getur varla gengið, þá á hann enn elskhuga,“ segir María.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×