Heilsa

Heimatilbúin hárnæring úr eldhúsinu

Ragnheiður Guðmundsdóttir skrifar
visir/getty
Hárnæring sem hljómar kannski furðulega en er algjörlega þess virði.

Hárið verður silkimjúkt og fallegt eftir þessa næringu og ekki er verra að vita að það eru engin óæskileg aukaefni í henni sem geta skemmt hárið eða haft önnur slæm áhrif. 

1/2 bolli hrein jógúrt

1/2 bolli majónes

1 egg

Skiljið eggjahvítuna frá rauðunni og blandið saman við hin hráefnin. Smyrjið næringunni í allt hárið, sérstaklega endana. Skellið á ykkur sturtuhettu og bíðið með næringuna á í 30 mínútur. Gott er að hafa handklæði á öxlunum þar sem næringin getur lekið niður á háls. Skolið næringuna úr með volgu vatni, alls ekki heitu. Þvoið svo með mildri hársápu og hárið er tilbúið, silkimjúkt og fallegt.








×