HSÍ ætlar að berjast fyrir farseðlinum til Katar

Eins og þjóðinni ætti að vera í fersku minni varð allt brjálað er Alþjóða handknattleikssambandið, IHF, ákvað að veita Þjóðverjum sæti á mótinu sem HSÍ taldi sig eiga að fá.
Reglunum var breytt til þess að koma Þjóðverjum inn og það gæti allt eins orðið til þess að Ísland taki sæti Barein en ekki einhver Asíuþjóð. Nýju reglurnar bjóða upp á það. Ekki er lengur farið eftir fyrstu varaþjóð heldur er það nefnd sem ákveður hvaða þjóð tekur sæti sem losnar.
Kærumálið enn í gangi
Það var reyndar ekki alveg útséð um að Ísland fengi sætið sem Þjóðverjum var úthlutað. HSÍ hafði nefnilega kært niðurstöðuna til dómstóls IHF og er enn beðið úrskurðar í því máli. Líkurnar á að Ísland vinni það mál eru reyndar ekki taldar vera miklar.
„Kæra okkar snerist um að það væri ekki hægt að breyta reglum í miðri keppni. Samkvæmt gömlu reglunum ætti Asíuþjóð að taka sæti Barein en ef nýju reglurnar eru notaðar þá er það nefnd á vegum IHF sem ákveður hvaða þjóð tekur þetta sæti,“ segir Guðmundur en sú nefnd fundar þann 21. nóvember næstkomandi.
Þó að ekki sé komin niðurstaða í mál HSÍ gegn IHF þá gæti sú pressa sem Ísland hefur sett á IHF vegna málsins hjálpað HSÍ að fá sætið sem nú var að losna.
„Okkar krafa er enn inni um að fá sæti á HM. Við vildum auðvitað í upphafi fá sætið sem Þjóðverjar fengu. Ég held að það geti skipt ansi miklu máli núna hvort Sameinuðu arabísku furstadæmin detta líka út. Ég held að IHF setji aldrei tvær Asíuþjóðir inn fyrir þessi tvö. Nefndin myndi örugglega taka ákvörðun sjálf um annað sætið sem myndi losna.“
Eins og málin eru að þróast þá virðist Ísland færast nær HM-sæti með hverjum deginum. Hversu vongóður er formaðurinn um að Ísland fái HM-sæti á endanum?
„Það er erfitt að segja. Kosturinn er að það er stutt í ákvarðanatöku hjá IHF og við munum að sjálfsögðu halda áfram að berjast. Það á að koma niðurstaða í okkar máli gegn IHF fljótlega eða fyrir þennan fund sem verður haldinn 21. nóvember. Við bíðum eftir dómsniðurstöðunni en ef það er hægt að leysa málið fyrir þann tíma þá er það að sjálfsögðu hið besta mál.“
Næstu tvær vikurnar verða afar áhugaverðar. Það er gríðarlegt hagsmunamál fyrir HSÍ að koma landsliðinu inn á HM til þess að auka möguleikana á að komast á ÓL í Ríó árið 2016. Leiðin til Ríó er mun greiðari ef Ísland fer eftir allt saman til Katar.
Tvisvar komist inn bakdyramegin á stórmót
Íslenska handboltalandsliðið hefur tvisvar sinnum komist inn á stórmót með því að fara bakdyramegin inn en það gerðist bæði fyrir Ólympíuleikana í Los Angeles 1984 og fyrir Ólympíuleikana í Barselóna árið 1992.
Íslenska landsliðinu náði „bara“ sjöunda sætinu í B-keppninni í Hollandi 1983 þar sem tvö efstu sætin gáfu þátttökurétt á leikunum í Bandaríkjunum árið eftir.
Þetta sjöunda sæti átti þó eftir að skila liðinu inn á endanum því tveimur mánuðum fyrir ÓL 1984 var ljóst að Sovétríkin, Tékkóslóvakía, Austur-Þýskaland, Pólland og Ungverjaland myndu ekki senda keppendur á Ólympíuleikana.
Íslenska landsliðið sló síðan í gegn á ÓL í Los Angeles og náði þar sjötta sætinu sem var þá besti árangur íslensks handboltalandsliðs á Ólympíuleikum.
Átta árum síðar rétt missti íslenska landsliðið af Ólympíusæti þegar liðið endaði í þriðja sæti í B-keppninni í Austurríki.
Ísland var hins vegar fyrsta varaþjóð á ÓL og fékk að lokum sæti Júgóslavíu aðeins þremur dögum fyrir leikana. Júgóslavíu var meinuð þátttaka í liðakeppni á leikunum vegna samskiptabanns Sameinuðu þjóðanna gegn Serbíu og Svartfjallalandi.
Íslenska landsliðið sló heldur betur í gegn í Barselóna og spilaði í fyrsta sinn um verðlaun á stórmóti. Ísland tapaði hins vegar bæði undanúrslitaleiknum og leiknum um þriðja sætið og varð að sætta sig við að missa af verðlaunum.
Þessi árangur í Barselóna var besti árangur Íslands á Ólympíuleikum þar til silfurliðið sló svo rækilega í gegn á ÓL í Peking 2008.
Tengdar fréttir

Íþróttaljós: Reglugerðin sem enginn vissi af
Alþjóðahandknattleikssambandið breytti reglunum um hvaða þjóð kæmi til vara ef einhver skyldi ekki fá keppnisleyfi, en lét engan vita. Framkvæmdastjóri evrópska sambandsins lætur ritarann svara spurningum fyrir sig.

Hvorki heyrst frá IHF né EHF
Þrátt fyrir að HSÍ hefði krafist svara fyrir miðnætti hafa engin svör borist frá IHF né EHF varðandi kröfu Íslands um að IHF dragi til baka ákvörðun sína um að úthluta Þýskalandi lausu sæti á Heimsmeistaramótinu í Katar

HSÍ er búið að hafa samband við IHF
Það er óvænt eitt opið sæti á HM og formaður HSÍ hringdi í IHF í dag og ítrekaði kröfu sína um að láta Ísland fá sæti á mótinu.

„Handboltinn er bananasport að þessu leyti“
Snorri Steinn Guðjónsson segir að hann hafi skilning á þeirri ákvörðun að hleypa Þýskalandi á HM í Katar.

Barein ekki með á HM | Ákvörðun tekin 21. nóvember
Ísland gæti tekið þátt á HM í Katar eftir að Barein dró lið sitt úr keppni.

Ísland ekki á HM þó svo Ástralía hafi hætt við
Þýskaland mun óvænt taka þátt á HM í Katar eftir að Ástralía dró sig úr keppni. Ísland tekur ekki sætið þó svo Ísland sé fyrsta varaþjóð frá Evrópu.

Vilja að ÍSÍ beiti sér
Ekkert nýtt í svari IHF við erindi HSÍ.

Þetta eru ekki eðlileg vinnubrögð
Handknattleikssamband Íslands sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem tilkynnt var að sambandið hefði ákveðið að kæra ákvörðun Alþjóða handknattleikssambandsins, IHF, um að úthluta Þýskalandi lausu sæti á HM til dómstóls sambandsins. Aðeins fjórir mánuðir eru til stefnu en þetta er líklegast fyrsta skrefið enda mun HSÍ líklegast þurfa að fara með málið fyrir Alþjóða íþróttadómstólinn í Lausanne í Sviss sem tók fyrir málefni Luis Suárez í sumar.

Einar: Höfum ekkert heyrt frá IHF
HSÍ hefur hvorki heyrt frá Alþjóða handknattleikssambandinu (IHF) né Evrópska handknattleikssambandinu (EHF) en þetta staðfesti Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ við Vísi rétt í þessu.

Sætið á HM í Katar var happafengur
Segir réttlátt lýðræðisferli hafa ráðið ákvörðun IHF um að veita Þýskalandi keppnisrétt.

Laug EHF að handboltaforystu Íslands?
Framkvæmdastjórn Alþjóðahandknattleikssambandsins leggur til breytingar í þröngum fimm manna hring sem nánast undantekningalaust eru samþykktar. Aum svör Evrópska handknattleikssambandsins til HSÍ.

Formaður HSÍ: Vitum ekki um neinar reglubreytingar
Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, segir að ákvörðun IHF um að hleypa Þýskalandi á HM hafi komið sér á óvart.

Svona var reglunum breytt hjá IHF
Varaforseti Handknattleikssambands Evrópu sat fundinn mikilvæga þar sem Þýskalandi var hleypt inn á HM í handbolta.

Landsliðsþjálfari Ástralíu brjálaður
Landsliðsþjálfari Ástrala í handbolta, Daninn Jan Ottosen, vandar forystu alþjóða handknattleikssambandsins, IHF, ekki kveðjurnar.

Kostar HSÍ 700 þúsund krónur að þingfesta mál
Það er stór og mikil ákvörðun fyrir HSÍ að þingfesta mál fyrir dómstóli IHF

Formaður HSÍ: Fengum ekki fullnægjandi svör
Evrópska handknattleikssambandið bendir á Alþjóðasambandið og svarar engu.

Kretzschmar um IHF-farsann: Snýst bara um peninga
Stefan Kretzschmar, fyrrum landsliðsmaður Þýskalands, segist vera með blendnar tilfinningar gagnvart þátttöku Þýskalands á HM í Katar.

Útilokum engar dómstólaleiðir
Formaður HSÍ furðar sig á því að hægt sé að breyta reglum eftir að keppni er hafin.

HSÍ kærir til dómstóls IHF
Handknattleikssamband Íslands sendi frá sér í dag tilkynningu þar sem fram kom að HSÍ hefur höfðað mál fyrir dómstól Alþjóða handknattleikssambandsins til ógildingar á ákvörðun IHF um að úthluta Þýskalandi sæti á Heimsmeistaramótinu í Katar.

Fer Ísland í riðil með Guðmundi og Degi?
Fari svo að íslenska landsliðið taki sæti Barein á HM í handbolta í Katar þá gætum við fengið skemmtilegt einvígi þriggja íslenskra þjálfara í riðlakeppninni.

Aron: Ekkert réttlæti - þetta snýst bara um peninga
Landsliðsþjálfarinn brjálaður vegna ákvörðunar IHF að senda Þýskaland á HM.

Ísland á að fara dómstólaleiðina
Ritstjóri þýska vikuritsins Handball Woche telur að handboltaforystan á Íslandi eigi að fara með ákvörðun IHF að hleypa Þýskalandi á HM í Katar fyrir dómstóla.

HSÍ krefst þess að Ísland fái sæti á HM 2015
Handknattleikssamband Íslands hefur krafist þess að Alþjóðahandknattleikssambandið dragi til baka ákvörðun sína að úthluta Þýskalandi lausu sæti á HM í Katar 2015 og úthluti íslenska liðinu sætið líkt og evrópska handknattleikssambandið hafði lofað.

Ástralía gefur lítið fyrir skýringar IHF
Krefst þess að fá sæti sitt aftur á HM í Katar og segir HSÍ berjast fyrir sæti sem er með réttu í eigu Ástralíu.

Formaður HSÍ: Dómstólaleiðin kemur enn til greina
Formaður og varamaður HSÍ sátu fund með Hassan Moustafa, formanni Alþjóða handknattleikssambandsins, í dag.

HSÍ ætlar ekki að gefa eftir
Von er á opinberri yfirlýsingu frá Handknattleikssambandi Íslands á morgun vegna ákvörðunar IHF að úthluta Þýskalandi sæti á Heimsmeistaramótinu í handbolta sem fer fram í Katar í upphafi næsta árs. IHF ákvað að draga Ástralíu úr leik og úthluta Þýskalandi sætinu þrátt fyrir að EHF hefði tilkynnt HSÍ að Ísland væri fyrsta varaþjóð frá Evrópu inn á mótið.

Ástralir íhuga að lögsækja IHF
Hafa fengið boð frá íþróttalögfræðingum um allan heim um aðstoð.

Guðjón Valur: Okkur að kenna að komast ekki á HM
Ísland hefur leik í undankeppni EM 2016 29. október í Laugardalshöllinni þegar liðið mætir Ísrael.

EHF: Vissum ekki af þessu fyrr en eftir fundinn í gær
Evrópska handknattleikssambandið mun skoða ákvörðun Alþjóðasambandsins nánar.