Lífið

Gagnrýnir Nova fyrir Snapchat-grín

Berglind Pétursdóttir
Berglind Pétursdóttir
Bloggarinn Berglind Pétursdóttir, betur þekkt sem Berglind Festival, sendi símafélaginu Nova skilaboð á Twitter í vikunni, þar sem hún gagnrýnir það fyrir að hafa ekki stelpur í Snapchat-gríni sínu.

Nova hefur undanfarið fengið þekkta Íslendinga til þess að taka yfir Snapchat-aðgang þeirra og hafa einungis strákar verið valdir til verksins.

Hún fékk svar frá Nova sem sagði að að sjálfsögðu yrðu stelpur með í gríninu en jafnframt var óskað eftir uppástungum. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og settu Twitter-notendur inn nöfn á mögulegum kandídötum á borð við Unni Eggertsdóttur, Steineyju Skúladóttur og Sögu Garðarsdóttur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×