Lífið

ABC fékk hálfa milljón frá Agli

Freyr Bjarnason skrifar
Egill Eðvarðsson afhenti ABC hálfa milljón króna.
Egill Eðvarðsson afhenti ABC hálfa milljón króna. Vísir/GVA
Fimmtíu myndir sem dagskrárgerðarmaðurinn Egill Eðvarðsson hafði sérunnið og rammað inn úr nýrri barnavísnabók sinni, Ekki á vísan að róa, voru til sölu á útgáfufagnaði bókarinnar á dögunum.

Myndirnar, sem kostuðu 10 þúsund krónur stykkið, seldust eins og heitar lummur og þær örfáu sem voru óseldar eftir fagnaðinn seldust að honum loknum.

Allur ágóði af sölu myndanna rann til ABC barnahjálpar, eða hálf milljón króna.

Barnavísnabókin hefur að geyma vísur sem Egill samdi til ungra barna sinna sem bjuggu þá hjá móður sinni í Bretlandi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×