Lífið

Fataskápurinn: Guðrún Tara myndlistarmaður

Guðrún Tara Sveinsdóttir myndlistarmaður
Guðrún Tara Sveinsdóttir myndlistarmaður
„Fatastíllinn minn er einfaldur en ávallt með örlitlu rokki eða jafnvel lúmskum pönk áhrifum. Ég á alltaf jafnt af stelpu og stráka fötum. Lítið sem ekkert svart. Ég hef haft mjög gaman af því í gegnum árin að vera frumleg í fatavali og er í rauninni algjört kamelljón, en þó er næst því að vera hin sanna ég að vera í  gallabuxum, mótorhjólastígvelum og peysu í yfirstærð,“ segir Guðrún Tara.

„Ég versla orðið eftir nauðsyn og leita vel og vandlega en nýjustu flíkurnar eru úr Gloria á Laugvegi og Kickstarter á Vesturgötu. Org er svo ný og spennandi búð sem selur einungis föt úr lífrænum og fairtrade efnum. Í dag hugsa ég fyrst og fremst um notagildi, gæði, handverk og hugsjón. Ég pæli mjög mikið í því hvað er á bak við hlutina, framleiðsla, velferð fólks sem vinnur bak við tjöldin, hver er efniviðurinn o.s.frv. Ég reyni að versla við fyrirtæki sem eru lítil og persónuleg og rekin af hugsjónarástæðum og með einhverja umhverfissinnaða stefnu.“

Ég keypti þennan jakka í Kickstarter á Vesturgötu, mjög flottur breskur hönnuður, Nigel Cabourn, allt sem hann notar í hönnun sýna sækir hann innan bretlandseyja. Svo finnst mér alveg tryllt cool að vaxið í honum er úr býflugnabúi sem býflugurnar voru búnar að yfirgefa.

Fór skólaus til Berlínar gagngert til þess að koma heim í nýjum vegan-mótorhjólastígvélum! Og það tókst! Yess!

Lífrænn línstuttermabolur, saumaður á verkstæðinu í Gloria og handlitaður. Fékk hann í gjöf frá eiginmanninum þrátt fyrir að vinna í búðinni sjálf. Mjög rómantískt, finnst þetta flottasti bolur sem ég hef átt.

Humanoid-bómullarklútur, þennan fékk ég í Gloríu á Laugaveginum, finnst hann vera eins konar lifandi listaverk sem ég get vafið um mig og notagildið í svona klút er framar vonum, hann getur gjörbreytt fataskápnum, gætt gamalt glænýju lífi.

Þessa tösku fann ég í Berlín, hef ekki átt tösku í mörg ár af því ég fann ekki þá réttu. Þessi er ekki bara falleg heldur líka vegan. Góð fyrir útlitið, sjálfstraustið og sálina!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×