Lífið

Þorir ekki að klippa af sér hárið

Elle Macpherson Fyrirsætan hefur ekki hugrekki til að vera með drengjakoll.
Elle Macpherson Fyrirsætan hefur ekki hugrekki til að vera með drengjakoll. Vísir/Getty
Fyrirsætan Elle Macpherson segist ekki þora að klippa á sér hárið en ljósu, löngu lokkarnir hennar eru fyrir löngu orðnir að vörumerki.

„Ég vildi óska að ég hefði hugrekki til að klippa af mér allt hárið og vera með drengjakoll. Kannski ég fái bara lánaða hárkollu,“ sagði hin fimmtuga Macpherson í viðtali við tímaritið People.

Fyrirsætan vill miklu frekar taka áhættu á rauða dreglinum þegar kemur að klæðnaði. Til dæmis finnst henni gott að vera í flatbotna skóm. „Fyrir löngu áttaði ég mig á því best væri að fara á fínar samkomur og að vera í síðum kjól og sandölum eða annars konar flatbotna skóm.“

Hún stundar einnig heilbrigðan lífsstíl. „Flest fólk telur að æska og fegurð haldist í hendur en samkvæmt minni reynslu eru það líka vellíðan og fegurð.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×