Lífið

Týnd Steinbeck-saga útgefin

Þórður Ingi Jónsson skrifar
john steinbeck
john steinbeck
Óútgefna smásagan With Your Wings eftir John Steinbeck hefur loksins verið gefin út.

Leikstjórinn Orson Welles lauk einum stríðsáraútvarpsþætti sínum 1944 með tilfinningaþrungnum upplestri á sögunni en hún hefur aldrei birst áður. Andrew F. Gulli, ritstjóri Strand Magazine, fann handritið á safni í Texas.

Sagan fjallar um svartan flugmann í seinni heimsstyrjöldinni. „Steinbeck sá Ameríku sem frábært land með gríðarlega mikla möguleika en á hinn bóginn gat hann séð ójöfnuð,“ ritar Gulli. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×