Slysaðist í bókband Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar 17. nóvember 2014 10:00 Aníta Berglind Einarsdóttir Vísir/GVA „
Ég byrjaði í grunnnámi í Tækniskólanum og ætlaði upphaflega að fara í grafíska miðlun og umbrot,“ segir Aníta Berglind Einarsdóttir, en hún er að útskrifast sem bókbindari frá Tækniskólanum. „Það var eiginlega skólastjóranum að kenna að ég fór í þetta. Á fyrsta ári er boðið upp á kynningaráfanga og ég var sett í bókbandið. Ég verð að viðurkenna að ég var ekkert spennt fyrir því, en lét mig hafa það og fór,“ segir Aníta. Námið segir hún hafa komið sér á óvart og verið mun fjölbreyttara en hún átti von á. „Þetta er svo ótrúlega víðtækt fag. Þetta snýst um að vinna allan frágang á öllu prentuðu efni, alveg frá því að sauma saman í höndunum og upp í það að mata stórar vélar. Við lærum svo margt, til dæmis að skera niður nafnspjöld, að binda bók frá grunni, handgylla og binda leðurbækur,“ segir hún, en hluti af kennslunni fór fram í Þjóðarbókhlöðunni. Ferlið í kringum prentun og bókband var mun meira og flóknara en hún hélt. „Ég hélt að ferlinu væri eiginlega lokið eftir prentun, en það eru ótrúlega margar hendur og vélar sem koma við sögu eftir það,“ segir Aníta, en hún ætlar að fara í áframhaldandi nám og stefnir á að fara í nám í prentun, þar sem þessi tvö fög tengist mikið.
Mest lesið Þetta eru höfundar Áramótaskaupsins 2024 Lífið Er alltaf hrædd Lífið „Hugleikið hver fær að stunda kynlíf og hver ekki“ Tónlist Rekinn af útgáfunni stuttu fyrir andlátið Lífið Níu ára og notar hestastudda sálfræðimeðferð til að komast yfir hamfarirnar Lífið Haustförðunin sem hefur slegið í gegn á TikTok Lífið One Direction sendir frá sér yfirlýsingu: „Við erum algjörlega miður okkar“ Lífið Afsláttur í BYKO fyrir fólk í framkvæmdum Lífið samstarf „Ég myndi aldrei fara í samband með einhverjum fávita“ Lífið Stuðningur fjölskyldunnar ekki sjálfsagður Lífið Fleiri fréttir Litfögur íbúð með mikinn karakter Haustförðunin sem hefur slegið í gegn á TikTok Þetta eru höfundar Áramótaskaupsins 2024 Níu ára og notar hestastudda sálfræðimeðferð til að komast yfir hamfarirnar Rekinn af útgáfunni stuttu fyrir andlátið Bingó í beinni á sunnudag Er alltaf hrædd One Direction sendir frá sér yfirlýsingu: „Við erum algjörlega miður okkar“ Stuðningur fjölskyldunnar ekki sjálfsagður Frumkvöðull í Detroit teknói í Gamla bíó í nóvember Þorvaldur Davíð og Hjálmar Örn í eina sæng Fjölskylda Liam Payne biður um andrými Malín Agla og Svavar eiga von á öðru barni „Ef ég á að vera hreinskilin þá var þetta bara svæsið einelti“ Símtal í neyðarlínu varpar ljósi á atburðarásina Harðlega gagnrýnd fyrir að birta myndir af líki Liam Payne Loka Sæbraut á laugardag vegna kvikmyndatöku Liljan er vinsælasta lagið á Dalvík Stjörnurnar minnast Liam Payne: „Þessar fréttir eru hrikalegar, ég er orðlaus“ „Ég myndi aldrei fara í samband með einhverjum fávita“ Liam Payne úr One Direction látinn Páll Óskar kveikti í kofanum Elskar að vera á níræðisaldri og eiga ungbarn Þurfti að missa þáttinn til að átta sig á næsta skrefi Kveiktu í dansgólfinu í Iðnó „Bullandi stífir í því að halda uppi þessu afneitunarhagkerfi sem við búum í“ „Ekki þurrt auga í salnum“ Krúttlegasti innbrotsþjófur landsins Lén skráð á laugardag ekki framboðslén Verður þér skipt út fyrir kynlífstæki? Sjá meira