Lífið

Hætt við gamanþætti með Ólafi Darra

Freyr Bjarnason skrifar
Ólafur Darri Ólafsson mun ekki leika í gamanþáttunum We Hate Paul Revere.
Ólafur Darri Ólafsson mun ekki leika í gamanþáttunum We Hate Paul Revere.
Ákveðið hefur verið að ráðast ekki í framleiðslu bandarísku gamanþáttaraðarinnar We Hate Paul Revere, með Ólafi Darra Ólafssyni í einu hlutverkanna.

Kapalstöðin AMC tilkynnti að þættirnir væru í bígerð í júlí síðastliðnum og voru miklar vonir bundnar við þá.

Hálftímalangur prufuþáttur var tekinn upp, en hann þótti ekki nógu góður og heillaði ekki stjórnendur stöðvarinnar.

AMC hefur áður getið sér gott orð fyrir hina vinsælu sjónvarpsþætti Breaking Bad og Mad Men. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×