Tónlist

Tíu bestu upphafslínurnar

Freyr Bjarnason skrifar
Upphafssetningin í lagi getur hrifið hlustandann með sér á einu augabragði þannig að hann sér sig knúinn til að hlusta á það sem á eftir kemur. Auðvitað þarf lagið að vera gott líka en eftirminnileg upphafslína er gulls ígildi. Vísir tók saman tíu af bestu upphafslínunum í frægum erlendum lögum.

Sex Pistols

Anarchy In The UK (1976)

„I am an Antichrist, I am an anarchist.“

Ódauðleg upphafslína úr fyrsta smáskífulagi Sex Pistols. Tekið af fyrstu og einu plötu þeirra, Never Mind the Bollocks, Here's the Sex Pistols, sem hafði gríðarleg áhrif á pönkbylgjuna.



Adele

Someone Like You (2011)

„I heard that you're settled down. That you found a girl and you're married now.“

Adele talar til fyrrverandi kærasta síns strax í upphafsorðunum og hlustandinn getur vart beðið eftir að fá að heyra meira. Ein vinsælasta ástarballaða síðari tíma þar sem vel saminn textinn er ómissandi. 



Nine Inch Nails

Hurt (1994)

„I hurt myself today, to see if I still feel.“

Hvort sem að um er að ræða útgáfu Johnny Cash eða Trent Reznor er upphafslínan í Hurt nógu áhrifamikil til að fá hlustandann til að staldra við. Þetta er byrjunin á lagi þar sem dauði, þunglyndi og einangrun er umfjöllunarefnið. 



Arctic Monkeys

Fluorescent Adolescent (2007)

„You used to get it in your fishnets, but now you only get it in your nightdress.“

Alex Turner lýsir hérna í einni setningu veröld konu sem lifir breyttu, rólegheita lífi þar sem fátt spennandi gerist. 



Patti Smith

Gloria (1975)

„Jesus died for somebody's sins, but not mine.“

Þessi fræga upphafslína er undir áhrifum frá ljóði Smith, Oath, sem kom út fimm árum fyrr. Það hófst með orðunum: „Christ died for somebody's sins, but not mine.“ Þar gaf Smith skít í uppeldi sitt sem Vottur Jehóva en síðar í ljóðinu skrifaði hún: „Christ, I'm giving you the goodbye, firing you tonight.” 



Pink Floyd

Another Brick In The Wall (Part 2) (1982)

„We don't need no education. We don't need no thought control.“

Upphafslínan úr þessu fræga lagi Pink Floyd vakti gríðarlega athygli á sínum tíma. Uppreisnarandinn allsráðandi þar sem skólayfirvöldum er sýndur miðfingurinn. 



Janis Joplin

Mercedes Benz (1970)

„Oh Lord, won't you buy me a Mercedes Benz. My friends all drive Porsches, I must make amends.“

Að sögn Bobbys Womack, sem lést í sumar, fékk Joplin hugmyndina að textanum eftir að hún fór í bíltúr með honum á Mercedes Benz-bifreið hans. Lagið, sem var tekið upp í einni töku, er talið vera gagnrýni Joplin á neysluhyggju.



The Bee Gees

Staying Alive (1977)

„You can tell by the way I use my walk I'm a woman's man. No time to talk.“

Þessi upphafslína lýsir diskótímabilinu vel og passar einkar vel við kvikmyndina Saturday Night Fever þar sem John Travolta fór á kostum í hvíta gallanum.



Nick Cave And The Bad Seeds

Into My Arms (1997)

„I don't believe in an interventionist God, but I know darling that you do.“

Nick Cave biður guð í framhaldinu að láta konuna sem hann er ástfanginn af í friði. Ef guð vildi endilega skipta sér af konunni hans ætti hann að beina henni í fang hans. Þrátt fyrir drungalegt yfirbragð lagsins ríkir bjartsýni í textanum.



Jimi Hendrix

Hey Joe (1967)

„Hey Joe, where you going with that gun in your hand?“

Í fyrstu virkar spurningin saklaus en verður þýðingarmeiri þegar hún er endurtekin strax. Upphafslínan býr til andrúmsloftið fyrir lagið og strax frá byrjun vitum við að endirinn verður ekki góður. 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.