„Ég hef lengi reynt að vanda mig við að pakka inn mínum gjöfum en breyti svolítið til ár frá ári,“ segir Tinna.
„Áherslan er á að hafa pakkana smekklega og fallega. Þar sem ég þekki auðvitað þá sem fá gjafirnar hugsa ég til hvers og eins viðtakanda og reyni að hafa skreytinguna pínu persónubundna, þannig að hverjum og einum finnist sinn pakki fallegur.“

„Ég á alltaf eitthvað til og bæti svo inn í á milli, aðallega í IKEA, Tiger og Söstrene Grene. Hvíta pappírinn sem ég pakka inn í núna fékk ég samt í Svíþjóð, þannig að ég flutti hann inn. Hann er flottur, en svolítið þunnur. Af því að lítið er eftir af honum tímdi ég ekki að hafa tvær umferðir nú eins og ég hef alltaf gert, heldur tók bók sem er mér er ekki mikilvæg og reif úr henni blaðsíður sem ég fóðra með. Þess vegna sést smá letur í gegn.“
Spurð hvort hún hafi ekki getað notað Fréttablaðið svarar Tinna Eik: „Ég fann enga síðu sem var bara með texta og vildi ekki hafa myndir með!“