Lífið

Jón Jónsson á von á öðru barni

Álfrún Pálsdóttir skrifar
Tónlistarmaðurinn Jón Ragnar Jónsson á von á sínu öðru barni með kærustu sinni Hafdísi Björk Jónsdóttur. Fyrir eiga þau soninn Jón sem fæddist síðasta sumar. Jón Ragnar er ekki sá eini í hæfileikaþættinum Ísland Got Talent sem barnalánið leikur við, því kollegi hans í dómarasætinu, Þórunn Antonía Magnúsdóttir, á von á sínu fyrsta barni. Kærasti hennar er Hjalti Haraldsson. Bæði börnin eru væntanleg í heiminn í september. Það er því óhætt að segja að frjósemin svífi yfir vötnum í hæfileikaþættinum.

Þórunn á von á barni í september.Mynd/anton





Fleiri fréttir

Sjá meira


×