Lífið

Samtímis á Íslandi og í Úrúgvæ

Sjálfsævisaga fótboltakappans kemur út á Íslandi 6. nóvember.
Sjálfsævisaga fótboltakappans kemur út á Íslandi 6. nóvember. vísir/getty
Sjálfsævisaga Luis Suárez, úrúgvæska fótboltakappans hjá Barselóna, kemur samtímis út í Englandi, Hollandi, Úrúgvæ og á Íslandi sjötta nóvember.

Mikil leynd hefur hvílt yfir efni bókarinnar en hennar er beðið með mikilli eftirvæntingu.

Í bókinni, sem Arnar Matthíasson þýddi á íslensku fyrir Veröld, segir Suárez frá harðri lífsbaráttunni í æsku í Úrúgvæ.

Hann segir meðal annars frá árunum í Hollandi, veru sinni hjá Liverpool og gerir upp dramatíska atburði heimsmeistaramótsins sumarið 2014.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×