Lífið

Tilbúin í aðra endurkomu

Emma Bunton og Geri Halliwell Emma elskar að vinna með hinum stelpunum í Spice Girls.
Emma Bunton og Geri Halliwell Emma elskar að vinna með hinum stelpunum í Spice Girls. Fréttablaðið/AFP
Emma Bunton er alveg til í aðra endurkomu Spice Girls, eða Kryddpíanna. Tilefnið verður samt að vera almennilegt.

Bunton, þekkt sem barnakryddið, vill endilega stíga aftur á svið með þeim Victoriu Beckham, Mel B, Geri Halliwell og Mel C ef hægt verður að toppa frammistöðu þeirra á lokaathöfn Ólympíuleikanna í London 2012.

„Við höfum ekkert rætt um þetta. Ég elska að vinna með stelpunum. Ég væri til í þetta en þetta snýst allt um rétta tímasetningu. Við vorum á Ólympíuleikunum og það er frekar erfitt að toppa þá,“ sagði hinn 38 ára Bunton við Bang Showbiz.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×