Lífið

Ísak farðaði ofurfyrirsætu

Freyr Bjarnason skrifar
Ísak Freyr Helgason, förðunarfræðingur, farðaði Cöru Delevingne.
Ísak Freyr Helgason, förðunarfræðingur, farðaði Cöru Delevingne.
Förðunarfræðingurinn Ísak Freyr Helgason farðaði nýverið ensku ofurfyrirsætuna Cöru Delevingne vegna auglýsingar þar sem hún benti á mikilvægi krabbameinsskoðunar.

Um er að ræða herferð sem kallast #FeelingNuts þar sem karlmenn eru hvattir til að þreifa á eistum sínum.

Ísak Freyr virðist vera í uppáhaldi hjá Delevingne því hann hefur áður farðað þessa eftirsóttu fyrirsætu, sem hefur setið fyrir hjá öllum helstu tískumerkjum heimsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×