Veiði

Þrír risar á sömu stöngina á Nessvæðinu

Karl Lúðvíksson skrifar
Andri Guðmundsson með 105 sm lax úr Höfðahyl í Laxá
Andri Guðmundsson með 105 sm lax úr Höfðahyl í Laxá
Það er ótrúlegt að heyra meðalþyngdina í Laxá í Aðaldal á þessu ári en hver stórlaxinn á fætur öðrum hefur verið dreginn á þurrt þar í sumar.

Í fyrradag brá svo við að ein stöngin sem var við veiðar á Nessvæðinu landaði þremur löxum í yfirstærð en þeir voru 105, 100 og 88 sm.  Mikið af stórum laxi sést víða í ánni og hefur takan verið með afbrigðum góð suma dagana.  Tískuflugan þar nyrðra í sumar virðist vera flugan Metalika sem margir þekkja en hún þykir sérstaklega gjöful hnýtt á frekar stóra einkrækju og "strippuð" hratt eftir yfirborðinu.  Tökurnar verða oft harkalegar og oftar en ekki sækir laxinn fluguna nokkurn spöl, svo ákafur virðist hann vera í hana.  Eins og sést á meðfylgjandi mynd eru þetta sannkallaðir stórlaxar sem hafa verið að veiðast í Laxá en á myndinni er Andri Guðmundsson með 105 sm lax sem hann veiddi ásamt föður sínum í Höfðahyl á Nessvæðinu.  Einn af þremur stórlöxum hjá þeim feðgum.  Laxarnir hjá þeim tóku Skógá og Black and Blue en þeir feðgar reistu einnig laxa á Sunray Shadow.  Samtals náðu þeir 7 löxum í túrnum með meðallengd uppá 93 sm.  Það eru ekki margar ár á Íslandi sem bjóða upp á svona góða meðalþyngd. 






×