Lífið

Hef ekki áhuga á snobbi

Nína Björk Gunnarsdóttir ljósmyndari
Nína Björk Gunnarsdóttir ljósmyndari Saga Sig
Lífið spurði Nínu Björk, ljósmyndara tíu spurninga.

1. Þegar ég var ung spurði ég mikið afþví ég var svo forvitin um lífið.

2. En núna er ég mun lífsreyndari hef upplifað gleði og sorg.

3. Ég mun eflaust aldrei skilja fólk sem nennir að velta sér upp úr fortíðinni lifa í núinu.

4. Ég hef ekki sérstakan áhuga á snobbi eða fólki sem er yfirborðskennt.

5. Karlmenn eru misjafnir á öllum sviðum.

6. Ég hef lært að maður á alls ekki að dæma fólk...það er alltaf ástæða fyrir því hvernig við erum.

7. Ég fæ samviskubit þegar ég er ekki alltaf með börnunum mínum.

8. Ég slekk á sjónvarpinu þegar ég nenni loksins að horfa á það.

9. Um þessar mundir er ég mjög upptekin af að rækta sjálfan mig og þá sem eru í kringum mig....fyrst og fremst að njóta lífsins.

10. Ég vildi óska þess að fleiri vissu að lífið er of stutt til að velta sér upp úr neikvæðri orku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×