Lífið

„Þú ert faðir hennar, enginn annar kom nokkurn tímann til greina“

Ellý Ármanns skrifar
Dj Margeir fékk þetta bréf sent.
Dj Margeir fékk þetta bréf sent.
Dj Margeir birti meðfylgjandi mynd af bréfi sem honum barst í pósti á Facebooksíðunn sinni í dag. Þar er honum meðal annars tjáð að hann eigi dóttur.   Margeir skrifaði eftirfarandi skilaboð með birtingu bréfsins:

„Ég á dásamlega vini. Vini sem eru tilbúnir til að leggja mikið á sig til að gleðja mig, en einnig til að hrekkja mig.Það verður að viðurkennast að það var undarleg tilfinning að eignast og missa strax aftur dóttur sem ég vissi ekki að væri til. En maður verður víst að sætta sig við það að manns eigin stríðni getur komið margfalt til baka. Vel gert! með vinsemd og virðingu - DJ Margeir. 

BTW. Þetta er „payback“ fyrir 6 eða 7 ára gamalt símaat sem ég og Jón Atli Helgason gerðum í sameiningu á sínum tíma og höfðum mikið gaman að.“



Smelltu á mynd til að sjá bréfið.
Hrekkur fullur af stafsetningavillum

Um var að ræða hrekk frá manni sem Margeir og Jón Atli Helgason gerðu at í fyrir sjö árum síðan. Hrekkjalómurinn sem hafði samband við Margeir og tjáði honum að hann væri bréfritarinn. 




„Ég þarf að Tilkynna þér Eitt,Hef Frestað því Of Lengi þar sem Ég Hef Verið í Mikilli Afneitun..“ þannig hefst umrætt bréf.

Þá skrifar bréfahöfundur að Margeir eigi dóttur sem hann veit ekki af: „Þú Ert Faðir Hennar,Enginn Annar Kom Nokkurn Tíman Til greina..“

„Ef það er eitthvað sem kærustur mínar í gegnum tíðina eiga sameiginlegt, einhver rauður þráður, þá er það staðreyndin að þær hafa allar verið mjög góðar í stafsetningu, þannig að eftir smá umhugsun var bréfið ekki nægilega trúverðugt,“ segir Margeir spurður um innihald bréfsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.