Lífið

FM957 er 25 ára í dag

Heiðar Austmann.
Heiðar Austmann.
Í dag fagnar útvarpsstöðin FM957 25 ára afmæli sínu, en það var á þessum degi sem stöðin hóf starfsemi í kjallara í húsnæði Fjölbrautarskólans við Ármúla.

Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og um árabil hefur stöðin verið ein vinsælasta útvarpstöð landsins fyrir fólk á aldrinum 16 til 34 ára.

Margir þekktir einstaklingar hafa unnið á stöðinni í gegnum tíðina og má þar nefna Tvo með öllu, Jón Axel og Gulla,  Ívar Guðmundsson, Rúnar Róbertsson, Gassi, Sigga Lund, Anna Björk Birgisdóttir, Valdís Gunnarsdóttir, Kiddi Bigfoot og margir fleiri.

Þá hafa margar af vinsælustu hljómveitum Íslands einnig stigið sín fyrstu skref á FM957 en þeirra á meðal eru Skítamórall, Í svörtum fötum, Sóldögg og Á móti sól.

Á þessum tímamótum hefur útvarpsstöðin náð öðrum áfanga en stöðin rekur eina stærstu samfélagsmiðlasíðu landsins en á dögunum náði FM957 því takmarki að 50.000 einstaklingar fylgja stöðinni á Facebook.

Að sögn Heiðars Austmann, dagskrárstjóra FM957 verður margt gert til gamans í tilefni dagsins. Gamlir dagskrárgerðarmenn stöðvarinnar munu koma og segja frá minningum sínum um FM957 sem og að margar af vinsælustu hljómsveitum Íslands undanfarin 15 ár koma og taka lagið.

Á mánudaginn stendur FM957 svo fyrir stórtónleikum í Laugardalshöllinni þar sem David Guetta, einn vinsælasti tónlistamaður heims stígur á svið. Ásamt honum munu Muscleboy, Úlfur Úlfur, Friðrik Dór, Steindi jr. og Bent koma fram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.