Veiði

198 laxar komnir úr Blöndu

Karl Lúðvíksson skrifar
Laxveiðiárnar á Norðurlandi eru enn sem komið er að skáka þeim sunnlensku við og vel það, bæði hvað varðar fjölda veiddra laxa og meðalþyngd.

Við höfum greint frá frábærri meðalþyngd t.d. í Vatnsdalsá og Blanda er þar ekkert síðri.  Í dag eru komnir 198 laxar á land og það gæti breyst áður en kvöldvaktin er úti en veitt er til 22:00 í kvöld.  Langmest af laxinum sem er að veiðast í Blöndu er 80-90 sm og um 12-18 pund sem er nákvæmlega það sem veiðimenn sækjast eftir í á eins og Blöndu.  190 laxar eru komnir af svæði I, 6 laxar eru komnir af svæði II og sitt hvor laxinn af svæðum III og IV.  Smálaxagöngurnar eru ekki komnar í árnar fyrir norðan frekar en árnar fyrir sunnan og eru nokkrir veiðimenn orðnir uggandi alveg að ástæðulausu alla vega enn sem komið er. Frá 1995 hafa í það minnsta komið þrjú ár sem hafa byrjað jafn rólega en endað í meðalári eða meira.  






×