Ólafur Kristjánsson hættir með Blika Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. apríl 2014 22:15 Ólafur Kristjánsson. Vísir/Vilhelm
Óvænt tíðindi bárust í kvöld þegar ljóst varð að Ólafur Helgi Kristjánsson yrði ekki þjálfari Breiðabliks í Pepsi-deild karla í knattspyrnu út komandi leiktíð. Danski blaðamaðurinn Morten Crone greindi frá þessu fyrst á Twitter fyrr í kvöld. Samkvæmt öruggum heimildum Vísis fer Daninn ágæti með engar fleipur. Ólafur verður kynntur til sögunnar sem nýr þjálfari dansks úrvalsdeildarliðs á morgun. Ekki er ljóst á þessari stundu hjá hvaða félagi Ólafur mun starfa né nákvæm tímasetning á því hvenær Ólafur yfirgefur Breiðablik. Þá er óljóst hver tekur við liði Breiðabliks nú þegar aðeins þrettán dagar eru í að flautað verði til leiks í Pepsi-deild karla. Guðmundur Benediktsson er aðstoðarþjálfari Breiðabliks. Fyrsti leikur Blika í deildinni er mánudaginn 4. maí gegn FH. Blikar lögðu Þór að velli 2-1 í Lengjubikarnum fyrr í kvöld og eru leikmenn liðsins á leið í bæinn í rútu þegar þetta er skrifað. Þeir mæta FH í úrslitaleik keppninnar í Garðabæ á fimmtudag. Nordsjælland þýkir líklegur áfangastaður en það er þó ekki staðfest. Ólafur aðstoðaði danska liðið við leikgreiningu á andstæðingum þess í Meistaradeild Evrópu í vetur. Ólafur spilaði á sínum tíma með AGF í Árósum, þjálfari svo yngri flokka félagsins áður en hann tók við starfi aðstoðarþjálfara liðsins. Hann sneri svo heim til Íslands sumarið 2004 og tók við liði Fram um mitt tímabil. Liðið féll undir hans stjórn árið eftir. Fimm umferðir eru eftir af dönsku úrvalsdeildinni. Flautað verður til leiks á nýjan leik í júlí.Enginn þjálfari unnið fleiri leiki með Blika í efstu deild Ólafur stýrði Breiðabliksliðinu í sjö og hálft tímabil eða allt frá því að hann tók við liðinu af Bjarna Jóhannssyni á miðju sumri 2006. Breiðablik vann 67 af 159 deildarleikjum sínum undir stjórn Ólafs, náði í 52 prósent stiga í boði og enginn þjálfari Blika hefur unnið fleiri leiki í efstu deild. Ólafur gerði Breiðablik að bikarmeisturum 2009 og svo Íslandsmeisturum árið eftir. Það eru einu stóru titlar karlaliðs félagsins.Den tidligere AGF-spiller Olafur Kristjansson på vej til et interessant træner-job i Superligaen. BT tirsdag. #sldk— Morten Crone (@Morten_Crone) April 21, 2014
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Tryggvi þarf að taka sig á í skólanum Körfubolti Kvartar undan Man. City við Evrópusambandið Enski boltinn Gera grín að Jürgen Klopp Fótbolti Auglýsa leik kvöldsins með minnsta skilti sem fyrirfinnst Körfubolti Garnacho þarf að splæsa máltíð á allt liðið Enski boltinn Víkingar skipta um gír Íslenski boltinn Afar óvænt endurkoma Alberts gegn Þóri Fótbolti Segir Trump að hætta þessu bulli varðandi Kanada Fótbolti Uppgjörið: Álftanes - Tindastóll 102 - 89 | Fimmti sigur Álftaness í röð kom gegn toppliðinu Tindastóli Körfubolti Líklegast að Ísland mæti Doncic á EM og spili í Póllandi Körfubolti Fleiri fréttir Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Sjá meira
Uppgjörið: Álftanes - Tindastóll 102 - 89 | Fimmti sigur Álftaness í röð kom gegn toppliðinu Tindastóli Körfubolti
Uppgjörið: Álftanes - Tindastóll 102 - 89 | Fimmti sigur Álftaness í röð kom gegn toppliðinu Tindastóli Körfubolti