Bíó og sjónvarp

Russell Crowe brotnaði saman á Íslandi: „Ég gat ekki hætt að gráta“

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Crowe í hlutverki sínu í Noah.
Crowe í hlutverki sínu í Noah.
Ástralski leikarinn Russell Crowe lýsir því hvernig hann brotnaði saman og grét á tökustað kvikmyndarinnar Noah sem tekin var hér á landi að hluta. Í samtali við Daily Mail segir hann að atriði þar sem hann dettur í sjóinn hafi gert útslagið.

„Ég ofkældist. Þegar tökum á atriðinu lauk lá ég á steinum og gat ekki staðið upp,“ segir leikarinn um atvikið. „Ég gat ekki hætt að skjálfa og ég gat ekki hætt að gráta.“

Hann segir sjö eða átta manns hafa breitt yfir sig teppi og sest síðan ofan á sig þar til hann jafnaði sig. „Þau föðmuðu mig til þess að reyna að fá mig til að hætta að skjálfa.“

Crowe segir það ekki bara hafa verið líkamlegt álag sem olli því að hann grét. Hann hafði nýlega fengið fregnir af því að eiginkona hans til ellefu ára vildi skilnað.

„Hún sagði mér að hún vildi ekki vera gift mér lengur og að við þyrftum að setjast niður með börnunum okkar og segja þeim það.“

Hann jafnaði sig þó á endanum og ýtti fólkinu ofan af sér. Þegar hann var spurður hvort hann vildi eitthvað bað hann um vínglas.

Haldin var sérstök viðhafnarsýning á Noah í Sambíóunum þann 18. mars en hún fer í almennar sýningar hér á landi og í Bandaríkjunum um næstu helgi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.