Lífið

Minntist Pauls Walker í beinni

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Leikkonan Jordana Brewster hélt hjartnæma ræðu á MTV Movie-verðlaunahátíðinni í nótt þar sem hún minntist leikarans Pauls Walker sem lést í bílslysi í nóvember í fyrra.

„Sú mikla sorg sem skapaðist um heim allan speglaði þann mann sem Paul hafði að geyma. Hann var svo, svo sérstakur,“ sagði Jordana en þau Paul léku saman í Fast & Furious-myndunum.

„Ég var svo heppin að fá að vinna með honum síðustu fimmtán ár og sjá hvað hann var gjöfull á hverjum degi. Hann var auðmjúkur. Hann hugsaði um aðra. Hann lét þér líða eins og þú værir mikilvægasta manneskja í heimi, hvort sem þú þekktir hann í fimm mínútur eða varst náinn vinur.“

Jordana var í kjól frá Fyodor Golan og í hælum frá Henri Lepore Dezert.

Tengdar fréttir

Hollywood syrgir Paul Walker

Fast and the Furious-stjarnan Paul Walker lést í skelfilegu bílslysi í nótt fertugur að aldri.

Paul Walker látinn

Fast and the Furious-stjarnan lést í bílslysi í gær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.