Bílar

Þrefalt heljarstökk á hjóli

Finnur Thorlacius skrifar
Að fara heljarstökk á hjóli krefst ofurhuga en þrefalt heljarstökk líklega fífldirfsku. Ryan Williams og félagar kæra sig kollóttan um það og hér sést Williams fara þrefalt áframhallandi heljarstökk fyrstur manna.

Í myndskeiðinu hér að ofan sést að stökkið tekst alls ekki í fyrstu tilraun og í misheppnuðum tilraunum þeirra er með ólíkindum að þeir skuli ekki slasast illilega.

Þótt margir haldi annað þá er mun erfiðara að fara áframhallandi heljarstökk en afturábak heljarstökk. Krefst það mikillar hæðar í stökkinu og eykur með því hættuna á slysum.

Sjón er sögu ríkari en magnað er að sjá þetta stökk heppnast fyrsta sinni, en ekki síður misheppnaðar tilraunir fram að því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×