Lífið

Sjáðu áhrif rafbyssu á mannslíkamann í afar hægri endursýningu

Birgir Olgeirsson skrifar
Félagarnir úr hópnum TheSlowMoGuys hafa fært heimsbyggðinni skemmtileg myndbönd í hægri endursýningu en í þessu myndbandi skoða þeir virkni rafbyssu á mannslíkamann í afar hægri endursýningu.

Það gæti komið einhverjum á óvart hvernig slíkar rafbyssur virka, sér í lagi sú staðreynd að þær innihalda gadda sem stingast inn í líkamann og gefa frá sér rafstuð.

Þetta er afar forvitnilegt myndband en viðkvæmir eru þó varaðir við áhorfi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×