Lífið

Klukkan er sex: „Þótt að þú finnir til sektarkenndar, þá veistu hvernig þetta endar“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Virkilega kynþokkafullur ungur maður.
Virkilega kynþokkafullur ungur maður. vísir
Þátturinn Punkturinn er á dagskrá Stöðvar 3 á laugardagskvöldum og hefur hann fengið góðar viðtökur en lokaþátturinn var á dagskrá um síðustu helgi.

Í fyrsta atriði þáttarins má sjá ungan mann sem vaknar klukkan sex. Þá tekur mjög kynþokkafullur þrekinn karlmaður á móti honum og dansar fyrir hann. Atriðið er stórgott en sjón er sögu ríkari. Þessi fallegi maður mætir síðan aftur á sviðið þegar um 14 mínútur eru liðnar af þættinum. 

Hópurinn á bak við Punktinn sat stíft allt síðastliðið ár yfir handritsgerð fyrir seríuna en kjarninn í hópnum hefur verið að leika sér með gerð sketsa síðan í Menntaskólanum í Kópavogi.

Síðan þá hafa nokkrir einstaklingar bæst í hópinn og eftir stendur samheldin hópur hæfileikaríks fólks sem hefur ekkert annað á stefnuskránni en að framleiða gamanþætti þar sem ekkert er heilagt og allt er fyndið.

Hópinn skipa Sindri Gretars, Bjarki Már Jóhannsson, Tómas Valgeirsson, Guðmundur Heiðar Helgason, Daníel Grímur Kristjánsson, Þórunn Guðlaugsdóttir, Egill Viðarsson, Þór Þorsteinsson, Viktor Bogdanski, Tanja Björk og Karl Lúðvíksson en til viðbótar er frábær hópur af leikurum og vinum í kringum hópum sem yfirleitt er kippt í þegar verið er að skipa í hlutverk.

Hér að neðan má sjá fimmta þáttinn í heild sinni. 

Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi barna. 


Tengdar fréttir

Punkturinn: Sjáðu fyrsta þáttinn

Gamanþættirnir Punkturinn hófu göngu sína síðastliðið laugardagskvöld á Stöð 3. Þættirnir eru ávallt í opinni dagskrá og einnig verða þeir í boði hér á Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×