Lífið

Öruggustu staðir heims

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fort Knox
Fort Knox vísir
Á síðunni Viral Thread er farið yfir öruggustu staði heimsins en þar er átt við þá staði sem hafa mikla öryggisgæslu.

Alveg frá Area 51 í Bandaríkjunum til Fort Know en þeir staðirnir hafa það allir sameiginlegt að vera með öryggisgæslu allan sólahringinn, alla daga ársins.

Fort Knox

Fort Knox er herstöð í Kentucky þar sem þúsundir tonna af gulli og söguleg gögn er varðveitt. Herstöðin er lokuð með 22 tonna járnhurð og fleiri öryggismyndavélar en hægt er að ímynda sér. Hér að ofan má sjá mynd af Fort Knox. 

Area 51
Area 51.
Sennilega frægasta svæðið á listanum. Svæðið er staðsett um 160 kílómetrum norður af Las Vegas í Mojave eyðimörkinni. Margoft hefur verið greint frá svæðinu í fjölmiðlum og er um að ræða leynilega herstöð á vegum bandaríska hersins.

Bandaríski herinn sér um rekstur herstöðvarinnar. Myndatökur eru bannaðar á svæðinu og ef einhver kemst inn fyrir ákveðið afmarkað svæði koma öryggisverðir á örfáum andartökum að þér. Talið er að mörg hundruð skynjarar séu í kringum svæðið af öryggisástæðum. 

The Mormon Church's Secret Vaults
Leynilega öryggisgeymsla kirkjunnar The Church of Jesus Christ of Latter-day Saints

Geymslurnar eru staðsettar tæplega tvöhundruð metrum inni í Little Cottonwood gljúfrinu í Utah. Þar er gríðarleg öryggisgæsla og má finna hitaskynjara sem nema þegar fólk nálgast staðinn. 

Seðlabankinn í New York - Federal Reserve Bank in New York
Talið er að um 25 prósent af öllu gulli í heiminum sé geymt þar. Geymslurýmið er neðanjarðar og um 80 metrum fyrir neðan jarðhæðina. Þeir sem sinna öryggisgæslu á svæðinu eru vel þjálfaðir í þeim geira.  

Bílageymslan Bold Lane
Maður þarf ekki að hafa áhyggjur ef maður skilur bílinn þinn eftir þarna. Geymslan er staðsett í Derbyshire á Englandi. Gríðarlega háþróað öryggismyndavélakerfi er á staðnum. Einnig eru neyðarhnappar út um allt í bílageymslunni og ef neyðarkerfið fer í gang er öllum útgönguleiðum lokað hið snarasta. 

Áin Tumen
521 kílómetra á sem tengir saman Rússland og Norður-Kóreu. Með því að fara upp ána er hægt að ferðast frá Rússland, í gegnum Kína, og til Norður-Kóreu. Áin er gríðarlega vel varin af Norður-Kóreskum hermönnum. 

Landamærin milli Norður og Suður-Kóreu
Landamærin milli Norður og Suður-Kóreu. Landamærin eru um 260 kílómetra löng og um fjórir kílómetrar á breidd. Gríðarlega mikil öryggisgæsla er á svæðinu.

Greenbrier
Byggt um 220 metrum fyrir neðan Greenbrier’s hótelið í West Virginia. 25 tonna kjarnorkuhurð verndar svæðið sem inniheldur 1100 rúm og allskonar búnað til að lifa af kjarnorkuárás. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×