Stefndi á Ólympíuleikana í Sydney Gunnar Leó Pálsson skrifar 25. ágúst 2015 09:00 Stefán Jakobsson hljóp maraþonið á fjórum klukkustundum og 42 mínútum en þetta er í fyrsta sinn sem hann hleypur heilt maraþon. Mynd/HrafnhildurOlgaHjaltadóttir „
Á sunnudagsmorgun þegar ég ætlaði að fara að standa upp úr rúminu var kerfið bara frosið, ég er búinn að vera eins og gamall bóndi eða mörgæs en þykir gríðarlega vænt um þessa verki og er hamingjusamur,“ segir tónlistarmaðurinn Stefán Jakobsson, sem er líklega þekktastur fyrir að vera söngvari hljómsveitarinnar Dimmu. Hann gerði sér lítið fyrir á Menningarnótt og hljóp heilt maraþon, ásamt því að spila á tvennum tónleikum með Dimmu. Þrátt fyrir að hafa hlaupið rúma 42 kílómetra að deginum til þurfti hann að hlaupa meira um kvöldið. „Við vorum að spila á Arnarhóli á Tónaflóði en þegar við kláruðum þar þá átti ég að vera mættur á svið á Bar 11 þannig að ég þurfti að hlaupa þangað en það hafðist,“ segir Stefán og hlær.Stefni á Ólympíuleikana Hann hefur alla tíð verið mikill hlaupari og stefndi lengi vel á að keppa á Ólympíuleikunum í Sydney árið 2000. „Ég var mikill hlaupari sem unglingur en um átján ára aldur var ég orðinn frekar latur og fannst meira spennandi að spila á gítar og drekka bjór í partíum. Ég fór þó aftur í hlaupið þegar ég var 21 árs og keppti í meistaramótum en hef lítið hlaupið undanfarin ár,“ segir Stefán. Hann er margfaldur Íslandsmeistari í millivegalengdahlaupum, 400 og 800 og 1500 metrum. Hann á fjórtán héraðsmet í Suður-Þingeyjarsýslu. Hann hljóp maraþonið á tímanum fjórum klukkustundum og 42 mínútum en þetta er jafnframt í fyrsta sinn sem rokkarinn hleypur maraþon. „Ég var ánægður með allt á milli fjögurra og hálfrar og fimm klukkustunda. Ég hljóp dálítið hratt til að byrja með, var kominn í tíu kílómetra á 59 mínútum.“ Hann byrjaði ekki að æfa af viti fyrir maraþonið fyrr en í júlí. „Ég byrjaði að æfa markvisst í annarri viku í júlí, þá fór ég aðeins að taka þetta föstum tökum, fram að því var þetta bara fyrir aftan rassgatið á mér og ég hljóp kannski einu sinni í viku. Ég hljóp í kringum 140 km í júlí, lengsta hlaupið var 37 kílómetra langt, í kringum Mývatn,“ segir Stefán. Hann hljóp ásamt Sunnu Brá Stefánsdóttur, formanni Foreldrahóps gigtveikra barna, til styrktar gigtveikum börnum en Sunna Brá hljóp tíu kílómetra.Hélt að tárin væru rigning Maraþonið tók á og segist Stefán hafa fellt tár án þess að vita af því í raun. „Ég var ekkert særður eftir hlaupið, það komu samt þarna ákveðnir punktar í hlaupinu þar sem maður var að gefast upp en mér leið aldrei það illa að ég væri að fara beila á þessu. Þegar ég var kominn með 25 til 35 kílómetra er minnið bara móða hjá manni. Ég meira að segja grenjaði á leiðinni, ég veit ekki af hverju, þetta voru bara einhverjar tilfinningar, ég vissi ekki hvað var að gerast, fannst ég ekki geta andað en þá var þetta ekki neitt,“ útskýrir Stefán, sem er stoltur af tárunum sem láku í hlaupinu.Seglið sem Sverrir Páll Snorrason hannaði til þess að hvetja Stefán í hlaupinu en hann táraðist er hann hljóp framhjá því.Mynd/SverrirPállSnorrasonFélagi Stefáns, Sverrir Páll Snorrason, peppaði hann mikið og var búinn að útbúa segl þar sem hann hafði fótósjoppað Stefán á mynd sem Forrest Gump hafði áður verið á. „Ég hljóp tvisvar sinnum fram hjá honum og í seinna skiptið sem ég hljóp fram hjá, hélt ég að það væri að fara rigna en þá voru þetta tár.“ Fleiri svokallaðir pepparar studdu hlauparana og má þar nefna Ómar Ragnarsson sem var staddur í undirgöngum í Elliðaárdalnum með rafmagnshjólið sitt.Nóg fram undan Það er nóg fram undan hjá Stefáni í tónlistinni því Sinfóníuhljómsveit Norðurlands gengur inn í heim þungarokkssveitarinnar Dimmu og ljær honum nýja vídd. Julian Kershaw, sem er heimsþekktur útsetjari frá Englandi, mun taka þátt í verkefninu með Dimmu. Hann hefur nýlega unnið útsetningar fyrir Sir Paul McCartney, Richard Ashcroft og Elvis Costello. Ray Gwilliams sem hefur séð um vídeógrafíkina fyrir Sigur Rós mun hanna sjónrænan hluta sýningarinnar. „Það er mikil tilhlökkun og gleði í mínum herbúðum fyrir þessu spennandi verkefni,“ bætir Stefán við að lokum.
Mest lesið „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Lífið Eins og þruma úr heiðskíru lofti Lífið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Lífið Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Lífið Sykursalur orðinn einn vinsælasti veislusalur Reykjavíkur Lífið samstarf Gátu ekki talað saman fyrir syngjandi þjónum Lífið Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Lífið Fanney Dóra og Aron gáfu syninum nafn Lífið Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Lífið Byltingarkennd nýjung fyrir blondínur frá JOHN FRIEDA Lífið samstarf Fleiri fréttir Vann til verðlauna fyrir götubitann Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Gátu ekki talað saman fyrir syngjandi þjónum „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Fanney Dóra og Aron gáfu syninum nafn Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Eins og þruma úr heiðskíru lofti Sláturgerð, Sherry og súkkulaði á Hellu Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Með húsaflutninga á heilanum Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Áslaug Arna fór í meðferð til að vinna bug á köngulóafælni Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Vill að Menendez bræðrum verði veitt frelsi Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Eminem verður afi Foreldrar minnka við sig svo börnin geti keypt fyrstu eign „Mikilvægt að umkringja sig fólki sem veitir manni innblástur“ Sjá meira