Lífið

Fólkið á Airwaves: Hætti við að flytja heim til að sjá GusGus

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Hilda Salazar og Julia Sørensen. Já, báðar húfurnar voru keyptar á landinu.
Hilda Salazar og Julia Sørensen. Já, báðar húfurnar voru keyptar á landinu. vísir/sój
Kaliforníubúinn Hilda Salazar og Daninn Julia Sørensen voru hálfar inni í verslun sem sérhæfir sig í íslenskri hönnun þegar blaðamaður Vísis náði tali af þeim á milli tónleika föstudagskvöldsins.

„Já, sko. Ég veit að það er kannski skrýtið að einhver frá Kaliforníu og Danmörk hangi saman á tónleikahátíð á Íslandi en sjáðu til - hún er dóttir frænda pabba míns," segir Salazar um Sørensen þegar blaðamaðurinn spyr hvað hafi leitt þær saman. „Þannig að við erum svona eiginlega að mætast á miðri leið með því að hittast hér á Íslandi,“ bætir hún við.

Bókstaflega elskar GusGus

Salazar segist hafa á undanförnum árum verið með annan fótinn vestanhafs en hinn á meginlandi Evrópu. Hún hafi þannig verið að undirbúa flutninga heim til Bandaríkjanna þegar Salazar fékk símtal frá fyrrnefndum föður sínum.

„Þegar pabbi sagði mér: „Hey, GusGus er að spila á Íslandi í nóvember“ þá var alveg ljóst að ég væri ekkert að fara aftur heim til Kaliforníu í bráð. Ég elska þau,“ segir Salazar.

Hún rambaði fyrir algjöra slysni á tónleika sveitarinnar í Los Angeles á síðasta ári og segist hafa fallið algjörlega fyrir þeim. „Það stóð alltaf til að flytja aftur heim til Bandaríkjanna en þegar ég frétti af tónleikum GusGus á Airwaves þá sagði ég bara „skítt með'ða“ og ákvað að lengja aðeins Evrópudvölina,“ segir Salazar.

Hér að neðan má sjá upptöku af tónleikunum sem kveikti áhuga, og í raun ást, Salazar á GusGus.

Vilji hennar að ná tónleikunum var svo einbeittur að Sørensen fékk engu um ferðina ráðið, hún skyldi svo sannarlega koma með Salazar til Íslands. Að sögn Sørensen hafi þó ekki þurft mikinn sannfæringarkraft til, hana hafi alltaf langað til að koma til Íslands.

Á höttunum eftir íslenskum hljómsveitum

Þá fjóra daga sem þær stöllur hafa verið á klakanum segjast þær hafa nýtt vel. Þær hafi þannig tekið daggóðan rúnt um landið og stoppað við á öllum þeim stöðum sem ferðamenn þurfi að haka af listanum sínum þegar þeir heimsækja landið. „Þú veist; fossar, hverir, Bláa lónið - allur pakkinn,“ segir Salazar.

Það hafi þó ekki komist í hálfkvisti við tónleikana sem þær hefðu séð á Airwaves til þessa að sögn Sørensen. Íslensku sveitirnir Vök, Retro Stefson og Auður sem og hin norska Aurora hafi allar komið þeim rækilega á óvart. Þó hafi það verið fyrrnefnd GusGus sem hafi stolið senunni - þrátt fyrir að hafa einungis séð síðustu tvö lögin.

„Röðin á tónleikana var fáránlega löng þannig að við biðum í rúmlega 40 mínútur í rigninunni eftir að komast inn. Við rétt náðum að troða okkur inn þegar dagskráin þeirra var að klárast,“ segir Salazar og því liggur svarið í augum uppi þegar blaðamaðurinn spyr hvað þær ætli sér að sjá á næstum dögum.

„GusGus, aftur. Auðvitað GusGus,“ segir Salazar hlæjandi. „Og Sin Fang!“ skýtur Sörensen inn áður en spjallið færist út í hvernig þær stöllurnar geti séð norðurljós áður en þær halda heim á morgun.

Þessi mynd var tekin á tónleikum Sin Fang í gærkvöldi sem vel var látið af.

@sinfanggg #airwaves15

A photo posted by icelandairwaves (@icelandairwaves) on


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.