Lífið

Ferðaðist um Evrópu og tók upp eitt flottasta myndband sem internetið hefur séð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Logan Dodds hefur sennilega skemmt sér nokkuð vel.
Logan Dodds hefur sennilega skemmt sér nokkuð vel. vísir
Nýsjálendingurinn Logan Dodds starfar sem pípari. Hann ákvað á dögunum að henda sér í ferð um Evrópu ásamt vinum og vandamönnum.

Það var upphafið af einhverju flottasta ferðamyndbandi sem sést hefur á internetinu.

Logan tók allt ferðalagið upp á myndband og sérstaklega þegar hann upplifði eitthvað sérstakt. Myndbandið er með hreinum ólíkindum og öfunda sennilega margir þennan dreng.

Hér að neðan má sjá myndband frá Evrópureisu Logan Dodds en hann var á feriðinni í þrjá mánuði. Þegar þessi frétt er skrifuð hafa um ein milljón manns horft á myndbandið. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×