Lífið

Caitlyn Jenner verður ekki ákærð fyrir manndráp

Stefán Árni Pálsson skrifar
Caitlyn Jenner
Caitlyn Jenner vísir
Rannsóknarfulltrúar fógetans í Los Angeles munu ekki mæla með því til saksóknara að Caitlyn Jenner verði ákærð fyrir manndráp vegna misgjarða fyrir þátt hennar í bílslysi í febrúar sl. þar sem ein manneskja lést.

Áður hafði verið greint frá því að rannsókn málsins hefði leitt í ljós að ökulag Jenner hefði verið hættulegt miðað við ríkjandi vegaðstæður. Nú hafa yfirvöld gefið út yfirlýsingu í tengslum við málið og er niðurstaðan sú að hún verði ekki ákærð. 

Jeppa hennar var ekið aftan á Lexus-bifreið sem varð til þess að hún kastaðist fyrir aðvífandi umferð. Ökumaður Lexus-bifreiðarinnar, hin 69 ára gamla Kim Howe, lést þegar bíll hennar varð fyrir Hummer-jeppa.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×