Söfnuðu tæplega 13 milljónum á einum degi Stefán Árni Pálsson skrifar 27. nóvember 2015 16:00 Verkefnið var mjög vel heppnað. vísir
Fyrirtækið BESTSELLER stóð fyrir alþjóðlegum góðgerðadegi þann 10. apríl síðastliðinn. Þann dag var öll upphæðin sem viðskiptavinir versluðu fyrir í öllum verslunum BESTSELLER um allan heim gefin til góðgerðamála. Helmingur af allri sölu á Íslandi rann til Krabbameinsfélags Íslands og hinn helmingurinn skiptist á milli UNICEF, GAIN og Save the Children / Barnaheill. Lovísa Pálmadóttir, markaðsstjóri BESTSELLER á Íslandi segir að hugmyndin hafi sprottið út frá því að fyrirtækið er 40 ára á þessu ári og í tilefni afmælisins hafi þau viljað gera eitthvað alveg einstakt. Verslanir um allan heim tóku þátt og dagurinn þótti takast mjög vel, á alþjóðavísu söfnuðust 2,5 milljarður íslenskra króna. Þrjú alþjóðleg verkefni voru valin sem snúa að aðbúnaði barna. UNICEF notaði peningana til að berjast gegn malaríu í ríkjum Afríku. Save the Children lagði upphæðina í verkefni sem miðar að því að mennta börn í dreifbýli Kína með uppbyggingu skóla. Samtökin GAIN sem berjast gegn vannæringu barna notaði peningana á Indlandi þar sem 48% barna undir fimm ára aldri þjáist af krónískri vannæringu. Að auki voru góðgerðasamtök í 39 löndum sem nutu góðs af þessu söfnunarátaki. Starfsfólk BESTSELLER á Íslandi fékk að velja hvaða samtök myndu fá peninginn sem safnaðist hérlendis, alls 12,6 milljónir. „Flestir starfsmenn okkar voru hlynntir og sammála því að það ætti að gefa Krabbameinsfélaginu upphæðina. Það kom í ljós að allir gátu tengt við það. Það spannar svo stórt svið,” segir Lovísa. Krabbameinsfélagið er rekið af styrktarfé þannig að það skiptir máli fyrir það að taka þátt í svona verkefni. Forrsvarsmenn BESTSELLER hafa nú sent frá sér myndband frá deginum og er ástæðan fyrir því að þau vilja sýna þjóðinni og þeim sem komu og létu gott af sér leiða hver ávinningur verkefnisins var og hvernig verið er að nýta þá fjárhæð sem safnaðist.
Mest lesið Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Lífið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru Lífið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Menning Fleiri fréttir Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Áslaug Arna fór í meðferð til að vinna bug á köngulóafælni Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Vill að Menendez bræðrum verði veitt frelsi Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Eminem verður afi Foreldrar minnka við sig svo börnin geti keypt fyrstu eign „Mikilvægt að umkringja sig fólki sem veitir manni innblástur“ Það er töff að vera sauðfjárbóndi Ingunn Lára gengin út með Celebi Elt á röndum með drónum Rauða dreglinum rúllað út fyrir Svörtu sanda „Þetta er alveg áhugavert en ekki jafn áhugavert og Instagramið mitt“ Tína sveppi í íslenskri náttúru og nýta til fulls „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg Barnabarn Kurt Cobain og Tony Hawk í heiminn Draumur Lilju rættist á tískuvikunni í París Eitt huggulegasta par landsins selur íbúð með fallegum stigagangi Sigmundur birtist fyrirvaralaust Breskur Eurovision-sigurvegari látinn Gerður Huld seldi húsið á 239 milljónir „Stór hluti af samfélaginu okkar“ Sjá meira