Lífið

Björk gefur út sérstakt app fyrir Stonemilker

Atli Ísleifsson skrifar
Myndbandið var tekið upp við Gróttu í samstarfi við Andrew Thomas Huang.
Myndbandið var tekið upp við Gróttu í samstarfi við Andrew Thomas Huang.
Björk hefur gefið út sérstakt app fyrir lagið og myndbandið við Stonemilker sem gefur fólki færi á að sjá 360 gráðu myndband hennar með sérstökum sýndarveruleikagleraugum.

Stonemilker er annað myndbandið sem gefið var út af plötunni Vulnicura.

Upphaflega var einungis hægt að sjá myndbandið á sérstökum sýningum í London og New York, en var síðar gefið út á netinu, svo sem á YouTube. Áhorfendur þurfa að ýta á takkana uppi í vinstra horninu til að njóta myndbandsins til fulls.

Myndbandið var tekið upp við Gróttu í samstarfi við Andrew Thomas Huang.

Nálgast má appið í iTunes.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×