Lífið

Trylltir víkingar í Hafnarfirðinum

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Hópur lítilla víkinga hefur sigrað kennara sinn, Tandra Auralokk, eftir að hafa lært allt um skylmingar í Víkingaskólanum.
Hópur lítilla víkinga hefur sigrað kennara sinn, Tandra Auralokk, eftir að hafa lært allt um skylmingar í Víkingaskólanum. vísir/gva
Á Víkingahátíð í Hafnarfirði verður margt í boði um helgina, þar á meðal verður Víkingaskóli fyrir börnin á dagskrá á hverjum degi klukkan 13.30.

Jökull Tandri Ámundason mun sjá um að kenna börnunum víkingaskylmingar.

„Við kennum börnunum að skylmast á öruggan hátt með sverðum, öxum og spjótum sem þau geta keypt á hátíðinni eða búið til sjálf og komið með,“ segir Jökull sem heitir Tandri Auralokkur þegar hann er kominn í víkingaklæði.

„Það eru mjög stífar reglur. Það er bannað að slá í haus eða bak og ef maður kemur aftan að einhverjum má bara flengja á bossann.“

Eftir að börnunum hafa verið kennd helstu atriðin er þeim skipt í tvö lið og þau berjast. Að lokum fá börnin að skylmast við víkingana.

„Þá eru 30-40 krakkar á móti okkur öllum og þau vinna okkur náttúrulega með ofurefli. Krakkarnir eru alveg vitlausir í þetta. Stelpurnar eru oftar en ekki hættulegri því þær einbeita sér að því að ná tækninni og verða mjög hnitmiðaðar.“

Tandri segir víkingana vera stór börn að leika sér en að það að æfa víkingaskylmingar sé bara áhugamál eins og fótbolti eða golf.

„Þetta sport er æft af körlum og konum um heim allan. Skylmingar eru æfðar, bogfimi og handverk þar sem reynir á þolinmæði og fínhreyfingar. Við sem æfum þetta hérna á Íslandi erum í félaginu Rimmugýgi. Við erum eins og ein stór fjölskylda og lykilatriði er að bera virðingu fyrir náunganum. Einnig fáum við stundum verkefni og var stór hluti hópsins aukaleikarar í Game of Thrones þegar þættirnir voru teknir upp hér á landi.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.