Lífið

Jennifer Lawrence hrekkti blaðamenn sem ætluðu að hrekkja hana

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Aumingja blaðamaðurinn var ekki með á nótunum.
Aumingja blaðamaðurinn var ekki með á nótunum. Vísir/Samsett
Hrekkjusvínin Anthony Padilla og Ian Hecox eru alþekktir fyrir þættina sína Prank it FWD þar sem þeir hrekkja fólk, allt fyrir gott málefni.

Fyrir einn af þáttum sínum ætluðu þeir sér að hrekkja Jennifer Lawrence en það sprakk heldur betur í andlitið á þeim. Þeir höfðu nefnilega ekki hugmynd um að Jennifer Lawrence vissi allt um hrekkinn.

Með hjálp Liam Hemsworth og Josh Hutcherson, meðleikurum hennar úr Hunger Games myndunum, gerði hún viðtalið afar óþægilegt fyrir hrekkjusvínin tvo sem vissu ekkert hvað var í gangi eins og sjá má hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Hafa nú þegar sigrað í netkosningu kvikmyndarisans Lionsgate

Bandaríski kvikmyndarisinn Lionsgate teygir sig í hugvit reykvískra menntaskólameyja og boðar þær á úrslitakvöld í Los Angeles í lok mánaðarins, en hópurinn Extura Production hefur þegar sigrað í netkosningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.