Lífið

Einstakt einbýlishús til sölu í miðbænum á 75 milljónir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ótrúlega fallegt hús.
Ótrúlega fallegt hús. vísir
Fasteignasalan Höfði er með á söluskrá einstakt einbýlishús í hjarta Reykjavíkur, Barónsstíg.

Ásett verð er 74,9 milljónir en fasteignamatið af eigninni er 30 milljónir. Samkvæmt skráningu Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 136,4 fermetrar en eigninni fylgir einnig um 20 fermetra óskráður, upphitaður garðskáli.

Húsið er á þremur hæðum og gengið inn af sólríkum palli. Á neðri hæð er komið inn í flísalagða forstofu en nýlegt timburgólf er á allri hæðinni að öðru leyti. Inn af forstofu er vel skipulagt þvottahús/geymsla með glugga, gólf er flísalagt. Úr forstofunni er gengið inn í meginrýmið en þar eru eldhús, stofa og borðstofa.

Á efri hæð er svefnaðstaða og baðherbergi. Notalegt barnaherbergi, bjart og rúmgott hjónaherbergi og lítið svefnherbergi gengt hjónaherberginu sem nú er notað sem fataherbergi.

Geymslur eru á háalofti, með niðurdraganlegum stiga, og undir þvottahúsi, þar sem gaskútar eru geymdir.

Á jarðhæð er sér skráð stúdíó-íbúð, samtals um 50 fermetrar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.