Lífið

Will Ferrell stal senunni: „Þegar ég tek of mikið af kóki þá græt ég bara“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Will Ferrel er einstakur maður.
Will Ferrel er einstakur maður. vísir
Will Ferrell stal heldur senunni á verðlaunaafhendingu tímaritsins GQ í gærkvöldi með magnaðri ræðu en hann vann verðlaunin, grínisti ársins.

Afhendingin fór fram í Konunglega óperuhúsinu í London en Will mætti einfaldlega og sagði:

„Ég var hræddur um að ræðan mín yrði of hæg og því tók ég smá kókaín inni á klósetti,“ fyrir framan gesti eins og Keith Richards, Sir Elton John, Sam Smith, Stephen Fry og Paul Rudd.

„Þegar ég tek of mikið af kóki þá græt ég bara.“ Hér að neðan smá sjá ræðuna sem hefst eftir um tvær mínútur. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×