Lífið

Disney með Frozen 2 í bígerð

Atli Ísleifsson skrifar
Anna og Elsa snúa aftur. Let it go! Let it go!
Anna og Elsa snúa aftur. Let it go! Let it go!
Teiknimyndaframleiðandinn Disney hefur tilkynnt að til standi að gera framhald af teiknimyndinni Frozen.

Myndin varð á síðasta ári tekjuhæsta teiknimynd sögunnar, auk þess að fyrirtækið sendi ógrynni varnings tengdum myndinni.

Leikstjórinn Chris Buck, handritshöfundurinn Jennifer Lee og framleiðandinn Peter Del Vecho munu öll koma að gerð myndarinnar.

Disney hefur enn ekki gefið upp hvenær til standi að frumsýna myndina.

Hlutabréf í Disney hækkuðu um fjögur prósent eftir að fréttir bárust af gerð framhaldsmyndarinnar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.