Konur eru reyndar konum bestar, ekki verstar Guðrún Ansnes skrifar 16. nóvember 2015 11:00 Þær Lilja, Unnur og Greta sjá um raddirnar fyrir Swing kompaní. Þær munu fara um allt land og koma við á yfir fimmtán stöðum fyrir jól. Vísir/Anton Brink „
Fólk gerir voða oft ráð fyrir að við hljótum að vera í samkeppni, báðar að syngja og spilum popp á fiðlu, en svo er nú einmitt alls ekki,“ segir Unnur Birna Björnsdóttir, tónlistarkona með meiru, sem tók höndum saman við fiðluleikarann Gretu Salome sem flestum ætti að vera orðin kunn eftir þátttöku sína í Eurovision árið 2012. Þá tók hún lagið Never Forget með Jónsa og lék eftirminnilega á fiðluna á sviðinu í Azerbaísjan. Nú hyggjast þær ferðast um landið með bandinu Swing kompaníinu.Eins gott að vinna saman„Þetta er nefnilega bráðfyndið, hvorug okkar hefur litið þetta sömu augum og margir virðast gera. Ég man til dæmis eftir því að hafa verið með félögum mínum í Fjallabræðrum að troða upp á sömu tónleikum og Greta, og að loknu atriði Gretu segir einn félaga minna við mig: „Á ég að slíta strengina?“ í algjöru gríni auðvitað,“ segir Unnur og skellihlær og heldur áfram: „Einhverju sinni var einmitt skotið svona létt á mig líka, þegar einn félagi minn sagði vissara fyrir mig að halda vel á spilunum ef ég ætlaði að halda í við Gretu.“ Unnur bendir á að þetta sé sérlega skondið í ljósi þess að í raun þrífist ekki svoleiðis hugsunarháttur innan íslensku tónlistarsenunnar. „Það er einhvern veginn engin samkeppni hérna. Bransinn er of lítill fyrir svona samkeppni. Það er alltaf einhver betri en maður sjálfur, svo það er bara allt eins gott að vinna bara saman í svona litlu samfélagi. Bransinn er lítill og þar þekkjumst við öll meira og minna, en ef ekki, þá eru allir skyldir öllum.“Gaman að detta í girl powerSegir Unnur Birna sérlega gaman að fá að leiða hesta sína saman við þá sem Greta dregur til leiks. „Það eru ekkert margir fiðluleikarar hérna heima sem spila popp og bara svona alls konar tónlist. Flestir eru í Sinfóstemningunni. Það er heldur ekkert leiðinlegt að detta í svona girl power stundum,“ útskýrir hún létt í lundu. „Svo vorum við svo heppnar að fá með okkur Lilju Björk til að vera rödd með okkur og hún er á blússandi siglingu með að læra á úkúlele,“ bendir Unnur á. Hljóðfærið úkúlele á rætur sínar að rekja til Hawaii og er lítill fjögurra strengja gítar. Auk þeirra þriggja koma svo Óskar Þormar, Leifur Gunnarsson og Gunnar Hilmarsson að bandinu góða. Athyglisspanið ekki langt. Unnur segir Swing kompaníið hafa verið duglegt við að æfa sig fyrir komandi jólatörn sem styttist óðum í að skelli á og oft hafi verið hamagangur á hóli. „Athyglisspanið okkar flestra nær ekkert rosalega langt svo við erum stundum bara komin út og suður, eða í hláturskast ef ekki er haldið vel á spöðunum. Ef Greta hefur ekki hemil á okkur, þá geta æfingarnar orðið ansi tímafrekar,“ bendir Unnur á, og skýtur að, að samstarfið sé í einu og öllu frábær skemmtun.Búnar að sitja sveitar Nafn sveitarinnar má rekja til þess að swing-tónlistar verður vart í tónleikaprógrammi hljómsveitarinnar. Swing-tónlist eða sveiflutónlist er mikil danstónlist og þróaðist út frá New Orleans-djassinum. Líkt og nafnið gefur til kynna er auðvelt að sveifla sér við tónlistina og má telja líklegt að það sé eitt af markmiðum sveitarinnar á komandi tónleikum. „Við ætlum svo að swinga um allt land í desember og stefnum á að taka að minnsta kosti fimmtán tónleika fyrir jól. Við Greta og Lilja erum búnar að sitja sveittar við að semja jólatexta við swing-lög, auk þess sem við höfum notið góðs liðsinnis í þeim efnum. En við ætlum svo sem að bjóða upp á klassísku jólalögin líka. Þá munum við fá kór úr hverju bæjarfélagi fyrir sig þar sem við höldum tónleika til að vera með okkur, svo eflaust eiga allir eftir að finna eitthvað við sitt hæfi,“ segir Unnur í lokin, yfir sig spennt fyrir komandi hlátursköstum með þessu spánnýja bandi.
Tengdar fréttir Draumur að hitta Slash Þrettán ára einhverfur strákur frá Akureyri fékk draum sinn uppfylltan þegar hann hitti gítarleikarann Slash eftir tónleika hans í Laugardalshöll á laugardag. 9. desember 2014 00:01 Dægurperlur millistríðsáranna Ég man þig er heiti tónleika sem haldnir verða í Digraneskirkju í kvöld. 21. október 2015 09:45 Eins og að búa á 5 stjörnu hóteli Gréta Salóme Stefánsdóttir, söngkona, tónskáld og fiðluleikari, hefur starfað sem skemmtikraftur um borð í Disney Magic-skemmtiferðaskipinu í eitt ár. Gréta hefur siglt um heimsins höf í tæpt ár en hún kemur heim eftir tvær vikur og þá kemur út nýtt lag með henni. 25. júlí 2015 11:00 Patró nafli heimsins Skjaldborgarhátíðin, hátíð íslenskra heimildarmynda, verður að vanda á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina og Hafsteinn Gunnar Sigurðsson, einn af upphafsmönnum hátíðarinnar, segir hana aldrei hafa verið eins eftirsótta og glæsilega. 9. maí 2015 11:30 Mest lesið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Lífið Úr Idolinu yfir í útvarpið Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Lífið Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Lífið Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Lífið Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Lífið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Lífið Frumsýning á Vísi: Rokkað á miðju gólfi komin sjö mánuði á leið Tónlist Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Lífið Fleiri fréttir Frumsýning á Vísi: Rokkað á miðju gólfi komin sjö mánuði á leið „Þetta er sem betur fer ekki upp á líf og dauða“ Ævintýrin hófust þegar hann hafnaði Juilliard Enginn súr í sætu teiti í Ásmundarsal „Ég fæ morgnana til að vera bara ég“ Rokkþyrstir geta tekið gleði sína á ný Sigga Ózk verður Ariana Grande og flytur til Noregs Ávísun á eilíf vonbrigði að elta góða veðrið Frumsýning á Vísi: Landsliðsmaður gefur út lag með pabba sínum Taylor Swift jafnaði met Beyoncé á VMA Myndaveisla: Ofurfjör á Októberfest Sáu ekki fyrir sér vinsældirnar en fagna nú 36 árum Sergio Mendes höfundur Mas Que Nada látinn Gáfu tóndæmi af Barfly í beinni Aldrei séð annað eins: IceGuys seldi nítján þúsund miða Herra Hnetusmjör stoltur eftir tryllta afmælishelgi Samtalið órjúfanlegur hluti af sköpuninni Ótrúlega slakandi raftónlistarhátíð í fimmtánda skiptið Segir Marr hafa stöðvað endurkomu The Smiths Fjörutíu blaðamönnum boðið en enginn mætti Stormaði út með látum en gafst svo upp á skrifstofustarfinu Dásamar Charlie XCX þrátt fyrir orðróminn Slíðra sverðin og boða endurkomu sveitarinnar Snorri valinn á lista 20 undir 30 hjá tímaritinu IQ Valin á lista efstu tuttugu hjá Norðurlöndunum Helgi Björns með splunkunýtt tónlistarmyndband Chappell Roan biður um frið: „Konur skulda ykkur ekki skít“ Aron Can með stóra tónleika erlendis Haustinu fagnað með tónleikum á Kaffi Flóru Nýdönsk og ADHD fá hvorar tvær milljónirnar Sjá meira
Draumur að hitta Slash Þrettán ára einhverfur strákur frá Akureyri fékk draum sinn uppfylltan þegar hann hitti gítarleikarann Slash eftir tónleika hans í Laugardalshöll á laugardag. 9. desember 2014 00:01
Dægurperlur millistríðsáranna Ég man þig er heiti tónleika sem haldnir verða í Digraneskirkju í kvöld. 21. október 2015 09:45
Eins og að búa á 5 stjörnu hóteli Gréta Salóme Stefánsdóttir, söngkona, tónskáld og fiðluleikari, hefur starfað sem skemmtikraftur um borð í Disney Magic-skemmtiferðaskipinu í eitt ár. Gréta hefur siglt um heimsins höf í tæpt ár en hún kemur heim eftir tvær vikur og þá kemur út nýtt lag með henni. 25. júlí 2015 11:00
Patró nafli heimsins Skjaldborgarhátíðin, hátíð íslenskra heimildarmynda, verður að vanda á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina og Hafsteinn Gunnar Sigurðsson, einn af upphafsmönnum hátíðarinnar, segir hana aldrei hafa verið eins eftirsótta og glæsilega. 9. maí 2015 11:30