Lífið

Jóhanna og Jónína spóka sig um á Mallorca

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mallorca fer þeim vel.
Mallorca fer þeim vel. vísir/facebook
„Já, það er líf eftir pólitík. Höfum verið í Prag og á Mallorka undanfarnar vikur,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra Íslands og fyrrum formaður Samfylkingar, í stöðu færslu á Facebook.

Hún hefur verið í sumarfríi, ásamt eiginkonu sinni Jónínu Leósdóttur, í Prag og síðan var förinni haldið á sólarströndina á Mallorca.

Strandarlífið fer þeim Jóhönnu og Jónínu vel, og þarna leika þær við hvurn sinn fingur. Eins og glögglega má sjá á meðfylgjandi mynd.

Já, það er líf eftir pólitík. Höfum verið í Prag og á Mallorka undanfarnar vikur.

Posted by Jóhanna Sigurðardóttir on 10. september 2015





Fleiri fréttir

Sjá meira


×