Sport

Anderson vann ríkjandi meistara og á leið í úrslit

Anton Ingi Leifsson skrifar
Anderson fagnar sigrinum.
Anderson fagnar sigrinum. Vísir/Getty
Phil Taylor mun mæta Gary Anderson á heimsmeistaramótinu í pílu sem nú stendur yfir. Anderson vann ríkjandi meistara, Michael van Gerwen, í gærkvöldi.

Taylor, sem hefur 16 sinnum orðið meistari, fór nokkuð auðveldleg áfram eftir sigur gegn Raymond van Barneveld í gær. Lokatölur 6-2.

Skotinn Anderson vann ríkjandi meistara Van Gerwen 6-3, en þetta er í annað skipti sem Anderson kemst í úrslitin.

„Því meiri pressu sem ég setti á hann, því oftar klikkaði hann," sagði Anderson við Sky Sports í leikslok.

„Ég hugsaði með mér. 'Þú ert í undanúrslitunum, koma svo' og það hjálpaði mér."

Úrslitaleikurinn fer fram í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×