Viðskipti erlent

Super Bowl: Guð verður rafmagnslaus

Samúel Karl Ólason skrifar
Liam Neeson er ekki sáttur með að BigBuffetBoy85 hafi eyðilagt þorp sitt í Clash of Clans leiknum. Kim Kardashian er ósatt við þau fjölmörgu gígabæt sem símafyrirtæki taka af notendum sínum. Það gagnamagn væri hægt að nota til að skoða myndir af henni. Síminn hjá guð verður rafmagnslaus og allt fer til fjandans.

Þetta er meðal þess sem gerist í tækniauglýsingum sem sáust í Super Bowl í gær.

Super Bowl auglýsingar eru þær dýrustu sem þekkjast. Bæði er mjög mikið lagt í framleiðslu þeirra og sýningartíminn er mjög dýr. Gífurlegt áhorf er á Super Bowl og hálfrar mínútu löng auglýsing kostar 4,5 milljónir dala, eða um 600 milljónir króna.




Meðal leikara sem sjást í þessum auglýsingum eru Liam Neeson, Sarah Silverman, Kim Kardashian og Rob Riggle. Auglýsingarnar má sjá hér að neðan.

Clash of Clans – Revenge með Liam Neeson Sprint - Sprint's Super Apology Mophi – All Powerless Loctite Glue – Positive feelings T-Mobile - #KimsDataStash T-Mobile – Data Vulture T-Mobile - Wi-Fi Calling með Sarah Silverman og Chelsea Handler Microsoft – Estella Microsoft – Braylon

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×