Heilsa

Er hægt að deyja af svefnleysi?

SIGGA DÖGG skrifar
Vísir/Getty
Svefnleysi eða of lítill svefn getur haft skaðleg áhrif fyrir heilsuna. Nokkrar svefnvana nætur geta leitt til einbeitningarleysis, þunglyndis, kvíða og ef svefnleysi gengur of lengi þá er aukin hætta á sykursýki, háum blóðþrýstingi og offitu. 

Þá getur einnig verið skaðlegt að sofa of lengi og getur það valdið sömu vandkvæmum og of lítill svefn.

Svefn er ekki til að hvíla líkamann því slíkt er hægt að gera með því að koma sér þægilega fyrir í sófa en vera vakandi. Svefn gegnir því frekar því hlutverki að næra og hvíla heilann.

Það er því fín lína um hversu mikill svefn er nægjanlegur. Samkvæmt nýjum tilmælum frá sérfræðingum í Bandaríkjunum þá þarf fullorðin manneskja á aldrinum 18 ára til 64 ára sjö til níu klukkustunda svefn á hverri nóttu, þó sumum dugi sex klukkustundir.

Fyrir fólk eldra en 65 ára þá er mælt með sjö til átta klukkustundum en sumir komast upp með minna ef þeir leggja sig á daginn.

Unglingar eiga að sofa milli átta til tíu klukkustundir, sumum nægja sjö klukkustundir en meira en ellefu klukkustundir á dag geta verið skaðleg heilsunni.

Yfirleitt þá þarf líkaminn að bæta sér upp svefnleysi en svefnskortur getur haft mikil áhrif á árvekni og andlega getu, svipað eins og að vera ölvaður. Líkaminn reynir því oft að næla sér í stutta lúra, þó viðkomandi taki ekki alltaf eftir því. Svefnskuld þarf að borga og er hún oftast innheimt.

Langvarandi svefnleysi er næstum ómögulegt nema fyrir þá sem glíma við banvænt arfgengt svefnleysi en í þeim tilfellum getur svefnleysi dregið til dauða því engin lækning er til við sjúkdómnum.

Ef þú telur þig glíma við svefnvandamál þá getur verið gott að leita til sérfræðings.


Tengdar fréttir

Börn og svefn

Svefn barna er eitt algengasta umræðuefni foreldra enda mikilvægur hluti hvers dags.

Svefn, bætir og kætir

Svefn er lífsnauðsynlegur og þegar hann fer úr skorðum þá getur allt lífið, og heilsan, farið úr skorðum

Eiga, eða mega, börn sofa uppí?

Vísindasamfélaginu, og uppalendum, hefur greint á um hvort ung börn megi sofa upp í hjá foreldrum sínum en hvert er raunverulega svarið?








×