Heilsa

Ertu raunsær elskhugi? Taktu prófið

sigga dögg skrifar
Vísir/Getty
Það skiptir máli að vera með raunhæfar væntingar til lífsins, bæði síns sjálfs og annarra því annars getur maður orðið fyrir vonbrigðum.

Nýleg rannsókn benti til þess að þeir sem hafa óraunhæfar væntingar til maka síns og sambandsins eru líklegri til að óttast að makinn fari frá þeim en slíkur ótti getur leitt af sér hegðun og hugsanir sem einmitt ýta undir að óttinn verði að veruleika.

Sálfræðingurinn Rita Ryan og félagar lögðu spurningalista fyrir yfir fjögur þúsund einstaklinga sem kannaði persónuleika og væntingar og hvernig það spilaði saman með hamingju og svo samband viðkomandi.

Í spurningunum eru skoðaðar þessar óraunhæfu hugsanir, trú á eigin getu til að hafa áhrif á tilfinningar og skap annarra, og mikilvægi þess að fá samþykki annarra.

Vísir/Getty
Svaraðu eftir farandi spurningum á skalanum 1 til 5 þar sem 1 er mjög ósammála og 5 er mjög sammála

1. Ef annað fólk gagnrýnir mig þá finnst mér ekki ekki mikilsvirði sem manneskja

2. Samþykki annarra er mér mjög mikilvægt

3. Ég get látið öllum líka vel við mig ef ég legg nógu hart að mér

4. Ég get ómögulega farið gegn óskum annarra

5. Mér finnst ég einskis virði ef ég fæ ekki stöðugt hrós 

6. Lífið er óbærilegt nema ég sé elskuð af fjölskyldunni minni

7. Ef ég elska einhvern sem elskar mig ekki tilbaka þá hlýt ég að vera ekki nægjanlega góð

8. Ég get komið í veg fyrir að fólk komist í uppnám ef ég hugsa um hvað þau gætu þarfnast

9. Ef ég rífst við vini mína þá hlýtur það að vera mér að kenna

10. Ef fólk í kringum mig er í uppnámi þá hef ég áhyggjur af því að ég hafi komið þeim í uppnám

Meðalmanneskjan skorar um 20 stig en ef þú ert nær 30 stigum þá er ástæða til að skoða sín mál, velta fyrir sér þeim fullyrðingum sem þú skorar hátt á og leita jafnvel til sálfræðings til að ræða málin nánar.

 








×