Sport

María stóð sig best af Íslendingunum

Anton Ingi Leifsson skrifar
María skíðaði ágætlega í dag.
María skíðaði ágætlega í dag. Vísir/María
María Guðmundsdóttir lenti í 48. sæti í fyrri umferð svigkeppni heimsmeistaramótsins í alpagreinum í Vali í Bandaríkjum í kvöld.

María stóð sig best, en hún skíðaði á 55,78 sekúndum.

Erla Ásgeirsdóttir lenti í 59. sæti á 57,87 sekúndum og Freydís Halla Einarsdóttir í 63. sæti á 58,68 sekúndum.

Síðari ferðin er skíðuð í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×