Arna Sif samdi við þriðja besta lið Svíþjóðar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. febrúar 2015 18:37 Arna Sif Ásgrímsdóttir í leik á móti Val. Vísir/Daníel
Arna Sif Ásgrímsdóttir, fyrirliði Þór/KA, mun spila með einu besta liði Svíþjóðar í sumar en hún hefur samið við Kopparbergs/Göteborg FC. Þetta er staðfest á heimasíðu félagsins. Arna Sif er 22 ára miðvörður sem hefur líka spilað inn á miðjunni. Hún hefur verið í stóru hlutverki með Þór/KA undanfarin sumur og var fyrirliði liðsins sem varð Íslandsmeistari 2012. Arna Sif Ásgrímsdóttir æfði með Kopparbergs/Göteborg FC í viku og skoraði eitt marka liðsins í sigri á Kungsbacka í æfingaleik en markið kom með skalla eftir hornspyrnu. Arna Sif gerir svokallaðan 1+1 samning það er eins árs samning með möguleika á því að framlengja hann um eitt ár. Kopparbergs/Göteborg FC endaði í þriðja sæti í sænsku úrvalsdeildinni á síðasta ári og varð bikarmeistari bæði 2011 og 2012. Þetta er mikill missir fyrir Þór/KA enda Arna Sif Ásgrímsdóttir leikjahæsti leikmaður félagsins í úrvalsdeild kvenna þrátt fyrir ungan aldur. Þetta er annar leikmaðurinn sem Þór/KA missir því sóknarmaðurinn Katrín Ásbjörnsdóttir er á leiðinni til norska úrvalsdeildarliðsins Klepp.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Besti íþróttamaður Íslands gleymdist“ Sport Fjármálastjórinn hágrét þegar hann gekk frá uppsögninni Fótbolti Ver jólunum í faðmi fjölskyldunnar og vonast eftir lóðasetti Fótbolti Klopp sýndi Red Bull áhuga þegar hann var enn þjálfari Liverpool Enski boltinn Misreiknaði sig á mjög mikilvægum tímapunkti Sport Hækkaði um tæp hundrað sæti á heimslistanum í ár Sport Músaskítur í leikhúsi draumanna Enski boltinn Aldrei eins margir á heimslistanum fallið úr leik fyrir jól Sport Ruddi Wembanyama og var rekinn af velli fyrir reiðiskast Körfubolti Manchester United skoðar Malasíuferð strax eftir tímabilið Enski boltinn Fleiri fréttir Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH Yfirlögfræðingur KSÍ verður framkvæmdastjóri Víkings KA-fólk fær sérútgáfu af bókinni Íslensk knattspyrna í ár Mikil sorg hjá Fram-fjölskyldunni Nauðsynlegt og löngu tímabært Stefán Þór Þórðarson í þjálfarastarf hjá Skagamönnum Fyrirliði Selfoss til liðs við Þróttara Vinna að lagningu gervigrass hafin í Vesturbæ „Hef mínar pælingar sem mér finnst gaman að taka áfram“ Blikar kveðja Damir og óska honum góðs gengis í Brúnei Mist Funa komin heim Víkingar seldu Bjarka Björn til Eyja Mætti syni sínum „Ég get ekki beðið að koma aftur til Íslands“ Ef launin væru svo há hefði ég gert fimm ára samning Verður áfram í grænu næsta sumar Arnór ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Eiður Gauti skoraði tvö á Mosfellsbræðurna í fyrsta leik Opnar sig um brjálæðið á Skaganum: Fékk áfall og átti erfitt með svefn Vuk í Fram Bankastarfsmaðurinn sem fór úr 3. deild í KR „Gaman að heyra hann öskra á bakvið mann“ Þungavigtarbikarinn hefst í janúar „Heyrt margar reynslusögur“ Bræðurnir saman í Mosó og Íslandsmeistari mættur Framkvæmdastjóraskipti hjá Val Fyrsta skóflustunga tekin og KR spilar á gervigrasi Sjá meira